Menntamál - 01.12.1949, Side 52

Menntamál - 01.12.1949, Side 52
174 MENNTAMÁL skóla um land allt hefur því notað heimild laganna og gert skógræktina að skyldunámsgrein. Heil fylki hafa líka sam- eina/.t um að koma þeirri skyldu á, og er Tromsfylki, þar sem ég dvaldist lengst, eitt af þeim. í framkvæmd verður þetta þannig, að hver skóli hefur tvo skógræktardaga á vori hverju með öllum heilbrigðum börnum á aldrinum 10—14 ára. Þykir hæfilegt að áætla hverju barni að gróð- ursetja 50 plöntur á dag eða 100 báða dagana. Að lokinni gróðursetningu vor hvert, eru hverju barni gefnar 5—10 plöntur, sem þau gróðursetja heima, og stuðlar það að auknum áhuga þeirra. — I flestum tilfellum eiga hrepp- arnir landið, sem plantað er í, og láta þeir girða það, ef girða þarf, og fá þeir efnið að mestu ókeypis. En það er heldur ekki óalgengt, að skólarnir planti í reiti, sem ein- stakir landeigendur eiga. í nokkrum tilfellum eiga svo skólarnir sjálfir reiti, sem hrepparnir hafa ánafnað þeim, eða einhverjir áhugamenn. Plönturnar kosta 4—5 aurá eftir gæðum, eða kr. 40—50 þúsundið. Útkoman verður oftast sú, að landeigandi fær plönturnar ókeypis, því að vinna barnanna er látin koma á móti verði plantnanna. Vafalaust mun nú einhver spyrja: Hvernig gefst þessi skipan? Hafa nemendurnir áhuga á þessum störfum og bera þau yfirleitt einhvern árangur, sem orð er á gerandi ? — Mér þykir fara bezt á, að Reidar Baten, fylkisskógar- meistari, svari þessum spurningum, þar sem ég ræddi mál- ið ýtarlega við hann. Tjáði hann mér, að skólabörn hefðu mikinn áhuga á þessu starfi og hefðu þegar unnið merki- legt þjóðnytjastarf á því sviði. Verkið ynnu þau yfirleitt ekkert verr, undir góðri leiðsögn, en fullorðið fólk. Og sem dæmi um það sagði hann, að einn af starfsmönnurri skógræktarinnar hefði nýlega gengið um stóran reit, sem börn hefðu plantað í í fyrra vor, og aðeins fundið tvær plöntur dauðar. Það væri því engin ástæða til að vantreysta börnunum. Þau hefðu hin síðari ár gróðursett margar tug- milljónir plantna og væri nokkur hluti þess orðinn að ágæt-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.