Menntamál - 01.12.1949, Page 56
178
MENNTAMÁL
GUÐJÓN JÓNSSON:
Nemendasamband
Kennaraskóla íslands.
Nemendasamband Kennaraskóla Islands var stofnað
sunnudaginn 30. okt. s. 1. á fundi, sem haldinn var í Kenn-
araskólanum. Samkvæmt lögum sambandsins er tilgangur
þess einkum sá, að efla gengi Kennaraskólans og að stuðla
að kynningu eldri og yngri nemenda hans.
Kennaraskólinn er jafngamall almennri skólaskyldu á
íslandi. Frá upphafi hefur hann starfað í sömu húsakynn-
um. Á þessum tíma hefur íbúatala landsins hækkað stór-
lega, og lengd skólaskyldunnar hefur tvöfaldazt. Af þessu
leiðir eðlilega mjög vaxandi fjölda kennaranema, en auk
þess hefur nám þeirra verið lengt. Það er því auðsætt, að
þröngt mun vera orðið í húsakynnum Kennaraskólans.
Þegar þess er enn fremur gætt, hversu kröfur tímans hafa
breytzt síðan 1907, má geta nærri, að húsnæði skólans og
öll ytri skilyrði eru orðin algerlega óviðunandi. Myndarleg
skólahús hafa verið reist um land allt undanfarin ár, frá
barnaskólum upp í háskóla. Vissulega er þeirra allra þörf.
En þeirra vegna má ekki gleyma Kennaraskólanum, sem
er á vissan hátt undirstaða þeirra allra.
Hið nýstofnaða Nemendasamband K. í. mun í fyrstu
leggja á það megináherzlu, að hraðað verði byggingu nýs
kennaraskóla, sem orðið geti verðugt tákn þess menntunar-
þorsta, sem löngum hefur fylgt íslenzku þjóðinni. Af fram-
sýni og fyrirhyggju ber að vinna, þótt hraða þurfi fram-