Menntamál - 01.12.1949, Qupperneq 63

Menntamál - 01.12.1949, Qupperneq 63
MENNTAMÁL 185 aðra stundina að þéra. Verður úr því önnur tegund af rugl- ingi í máli. — Frá öðru sjónarmiði ræði ég ekki um þér- ingasiðinn. Ég tel hann valda málspjöllum í íslenzku. Þá sný ég mér að mannanöfnunum. — Fyrir mörgum árum skrifaði ég nær hundraði nafna karla og kvenna upp úr mannanafnaskrá, sem gerð var eftir manntali frá 1910. Taldi ég þau öll óhæf í íslenzku máli. Hitt vil ég ekki ábyrgjast, að sá dómur hafi verið nokkur óskeikull páfa- dómur. — Mörg þessara nafna og fleiri þeim lík munu eflaust haldast við enn í dag. — En þó að það sé athuga- vert mál, ætla ég ekki að fjölyrða um það hér. Allmörg mannanöfn hafa tvenns konar eignarfallsend- ingar, svo sem s og ar. Nokkuð er það á reiki, hvernig þær eru notaðar og kennir þar nokkurs ósamræmis. Þannig er sagt og ritað Guðmundsson og Guðmundsdóttir, Sigurðs- son, en Sigurðardóttir. Bæði nöfnin fá þó aðallega eignar- fallsendinguna ar í daglegu tali. — Málvenjan mun hér verða að ráða rithætti. — Eitt af þessum nöfnum er Björn. Eingarfallið getur bæði verið Björns og Bjarnar. Algeng- ara mun þó, að börn Björns skrifi sig Björnsson og Björns- dóttir. Þó skrifa allmargir Bjarnar í þessu sambandi. Tel ég það óheppilegt, þó að rétt sé. Færi ég tvær ástæður fyrir því áliti inínu. — Hin fyrri er sú, að eignarfallsmynd- in Björns er miklu algengari í almennu máli. Hin síðari er sú — og hana álít ég Veigameiri — að Björnsnafninu með endingunni ar er sífellt ruglað saman við nafnið Bjarni í sama falli. Því veldur óefað hljóðlíkingin Bjarnar — Bjarna, sem í venjulegum framburði heyrist lítill eða eng- inn munur á. Ég hefi líka oft séð á prenti nöfn þeirra, sem skrifa sig Bjarnarson, rangfærð þannig, að skráð er Bjarnason. Björn og Bjarni eru þó ekki sama nafnið, þó að mynduð séu af sama stofni, svo sem segir í málfræði Hjaltalíns. Þá eru ættarnöfnin. Þau eru ekki ný hér á landi, þó að þeim fjölgaði mest, þegar ættarnafnafaraldurinn geisaði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.