Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 15
menntamál
9
Þórarinsson og Þórhallur Bjarnarson. Skyldi nefndin hafa
lokið störfum innan 7 daga, en þá átti að halda framhalds-
stofnfund.
Stofnendur félagsins, seni skrifaðir eru undir þessa fyrstu
fundargerð, voru:
Bjcírn M. Ólsen, Páll Melsted, Pálrni Pálsson, BcVðvar
Böðvarsson, Geir Zoega, Jcihannes Sigfússon, Þorvaldur
Thoroddsen, Þórhallur Bjarnarson, Björn Jensson, Jónas
Jónassen, Ólafur Rósenkranz, Helgi H. Helgesen, Eiríkur
Briem, Sigurður Sigurðsson, Jónas Helgason, Tómas Hall-
grímsson, Sp. W, Paterson, Morten Hansen, Steingrímur
Johnsen, Jón Þórarinsson.
Næsti fundur var haldinn 2.H. febrúar og lög fyrir félagið
þá samþykkt. Það hlaut nafnið „Hið íslenzka kennarafélag“.
— Tilgangur þess var að „efla menntun hinnar íslenzku
þjciðar, bæði alþýðumenntunina og hina æðri menntun,
auka samvinnu og samtök milli íslenzkra kennara og hlynna
að hagsmunum kennarastéttarinnar í öllum greinum, and-
legum og líkamlegum". Rétt til inngöngu í félagið hafði
„hver sá maður, karl eða kona, sem hefur stöðuga atvinnu
af kennslu. Inntöku annarra manna ber forseti undir at-
kvæði félagsmanna“. Þá var samþykkt, að félagið beitti sér
fyrir útgáfu rits um uppeldis- og menntamál, og áttu félags-
menn að fá það ókeypis. Árstillag var ákveðið 2 krónur, en
25 krónur í eitt skipti gilti sem ævitillag.
Þar með var fyrstu kennarasamtökum í landinu hleypt
af stokkunum. Félagið starfaði óslitið í 33 ár og átti frum-
kvæði að mörgum mikilsverðum málum, svo sem síðar verð-
ur vikið að.
III.
Skal þá vikið að þeim framförum, sem urðu á tímabil-
inu, sem í upphafi þessa rnáls var minnzt á.
Árið 1885 samþykkti Alþingi frumvarp um stofnun seðla-
banka á íslandi og samkvæmt þeim lögum hóf fyrsti banki