Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 96
90
MENNTAMAL
]>ingið lýsir stuðningi sínum við meðfylgjandi tillögur um fram-
haldsnám kennara, sem stjórn S.í.15. hefur þegar komið á i'ramfæri
við skólastjóra Kennaraskóla lslands.
Tillaga um framlialdsnám alrnennra barnakennara.
Inntökuskilyrði sé almennt kennarapróf. Starfandi kennarar með
nokkra reynslu í kennslustarfi skulu ganga fyrir námskeiðsvist að
iiðru jöfnu.
I. Uppeldisfræði.
Saga uppeldisfræðinnar og þróun. Stefnur og straumar í
ýmsum löndum. Skapgerðaruppeldi, siðrænt uppeldi, agi. 40 st.
II. Barnasálarfræði.
Rakin sálræn þróun barnsins (mál, liugsun, ímyndunar-
afl, skapandi athöfn o. s. frv.) og gerð grein fyrir þeirn
þáttum, sem eru ákvarðandi fyrir Jiroska Jiess (arfur og
uppeldi) ............................................. 60 st.
III. Uppeldisfræðileg sálarfræði.
Sálarfræði námsins, minni, skapgerð, greindarrannsóknir,
skólaþroskapróf, námsgeturannsóknir og stöðluð nánts-
greinapróf. Börn með skerta námsgetu, sérkennsla. Lestr-
arathöfnin og lestreg börn.............................. 100 st.
JV. Kennslufræði og kennsluælingar.
Almenn kennslufræði, markmið og leiðir, ný vinnubrögð,
starfrænt uppeldi, einstaklingskennsla, hópvinna. Audio-
visuelle kennslutæki. Námsgreinar barnaskólans.......... 310 st.
Samtals 510 st.
1 sambandi við IV. lið yrði farið vandlega yfir námsefni barnaskól-
ans, ræddar aðferðir og kynnt kennslugögn. Hluti af kennslunni fari
fram sem sýnikennsla og kennsluæfingar undir liandleiðslu viðkom-
andi leiðbeinandá.
Nauðsynlegt er, að námsefninu sé tvískipt þannig, að nemendur
geti valið um línur eftir Jjví hvort viðkomandi hefur hug á kennslu
í yngri eða eldri deild barnaskólans.
Nemendur skulu í samráði við leiðbeinendur skrifa a. m. k. eina
ritgerð um tiltekið efni og gera kennsluáætlun í einni námsgrein.
Tillaga um sérnám liennara afbrigðilegra barna (hjálparbekkjakenn-
ara, vanvitaskólakennara og lesbekkjakennara).
Inntökuskilyrði sé almennt kennarapróf og a. m. k. 5 ára kennsla
með góðum árangri.