Menntamál - 01.09.1964, Side 93
MENNTAMÁL
87
Hin nýkjörna stjórn S.Í.B. Talið frá vinstri: Páll GuÖmundsson, íngi
Kristinsson, Arsœll Sigurðsson, Sliúli Þorsteinsson, Gunnar Guðmunds-
son, Þórður Kristjánsson og Svavar Hclgason.
og gert er ráð fyrir í samkomulagi Alþýðusambands íslands, at-
vinnurekenda og ríkisstjórnarinnar.
\. I'ingið felur stjórn S.Í.B. að vinna að því við næstu kjarasamn-
inga, að sömu laun verði greidd fyrir kennsiu á öllu skyldu-
stiginu.
5. Fulltrúaþingið skorar á stjórn S.Í.I5. að vinna að því:
a) að barnakennarar og skólastjórar fái nú þcgar launaflokks-
bækkanir sambærilegar við þær, sem ríkisstjórnin hefur mælt
með, að framhaldsskólakennarar fái.
lj) að þau kjaraatriði Kjaradóms, er varða kennara, komi þegar
í stað til framkvæmda, svo sem kennsluafsláttur kennara, er
kenna afbrigðilegum biirnum.
c) að vinna að því við næstu kjarasantninga, að vikuleg kennslu-
skylda barnakennara verði færð úr 36 stundum i 30.
6. I’ingið lýsir óánægju sinni yfir því, hve málarckstur yfirvinnu-
málsins liefur dregizt á langinn, en telur þó, úr því sem komið
er, vafasamt að halda honum áfram og stvður því gagntilboð
S.Í.B. með þeim fyrirvara, að hverjum félaga innan S.Í.B. sé
heimilt að fylgja eftir frekari kröfum um vangoldið yfirvinnu-
kaup, ef honum sýnist svo.“