Menntamál - 01.09.1964, Page 82
76
MENNTAMAI.
Mörg járn í eldinum hjá Ríkisútgáf u námsbóka.
Allmargt kennslubóka og hjálpargagna hefur komið út
hjá ríkisútgáfunni að undanförnu. Nokkurra þessara verka
hefur þegar verið getið hér í ritinu, en öðrum verður gerð
skil í þessu liefti og þeim næstu. Hér fer á eftir yfirlit, sem
Jón Emil Guðjónsson framkvæmdastjóri lét Menntamálum
í té, um nokkrar bæktir og hjálpargögn, sem eru í undir-
búningi hjá útgáfunni:
Ný lundafrœdi hunda burnuskólum, eftir Erling S. Tómas-
son kennara. Bókin verður í tveimur heftum og mun fyrra
lieftið koma út á þessu skólaári.
Reikningsbók, eftir Elías Bjarnason. Endurskoðuð og end-
ursamin af Kristjáni Sigtryggssyni kennara. Bókin mun
skiptast í þrjú hefti og er hið fyrsta komið út.
Minútan, æfingaspjöld í lestri, eftir Snorra Sigfússon fyrr-
verandi námsstjóra. Þetta vinsæla hjálpartæki við lestrar-
kennslu hefur verið ófáanlegt um skeið, en kemur nú út
á ný í 50 blaða samstæðu.
í fyrra kom út I. hefti af Keðjusöngvnm, eftir jón Ás-
geirsson söngkennara. 2. og 5. hefti eru í undirbúningi og
koma væntanlega út íyrir lok þessa skólaárs.
Skóladagur, æfingar í lestri og litun, eftir Björn Daníels-
son skólastjóra. Í fyrra kom út Sílaveiðin eftir sama höfund
og verður jretta nýja hefti í svipuðum búningi.
Eg reikna, 3. hefti, eftir Jónas B. Jónsson og Kristján Sig-
tryggsson. Þetta helti er einkum ætlað 9 ára börnum.
Æfingabók með Ég reikna 1. h., eftir Jónas B. Jónsson.
Kemur væntanlega út um áramót.
Skriftarbók handa unglingaskólum, eftir Friðbjörn Benó-
nísson. í bókinni eru aðallega skriluð verkefni, en einnig
allmörg prentuð. Enn fremur verkelni með blokkskrift og