Menntamál - 01.09.1964, Side 72
fifi
MENNTAMÁL
að koma fyrst, samkvæmt þeirri sjálfsögðu reglu, að athug-
un komi á undan athöfn.
Félagið bendir einnig á tillögu fundar skólastjóra héraðs-,
mið- og gagnfræðaskóla, sem haldinn var í Reykjavík. í júní
19fi3, en meðal fjölmargra atriða til endurbóta á námstil-
högun þessara skóla er stnngið upp á nokkurri lengingu
árlegs starfstíma eða fjölgun vikulegra kennslustunda. Virð-
ist sízt ástæða til að leggja meira kapp á að framkvæma
þennan lið tillagna skólastjóranna en ýmsa aðra, sem vísara
verður að telja, að stelni til augljósra endurbóta á starfstil-
högun skóla þeirra.
Að rækilega athuguðu máli lýsir Félag gagnfræðaskóla-
kennara í Reykjavík sig algerlega andvígt lengingu sk(')la-
ársins, nema fyrst hali óyggjandi verið sýnt fram á, að slík
breyting sé til ótvíræðra bóta fyrir nemendur, og fullt tillit
sé tekið til þeirrar aðstöðubreytingar kennara, sem af leng-
ingu hlýzt. Félagið telur svo mörg rök mæla á móti breyt-
ingu þessari, bæði fjárhagsleg og félagsleg, að ekki sé gerlegt
að ráðast í hana, nema lullt samkomulag sé milli allra máls-
aðila. En málsaðilar hljóta hér að teljst foreldrar, fræðslu-
yfirvöld og kennarar.
Aðalrök forsvarsmanna lengingarinnar virðast þessi:
1. að með lengingu árlegs skólatíma styttist námstími
þeirra, er búa sig undir langskólanám.
2. Námstími í útlöndum og þá sérstaklega á Norðurlönd-
um, sé lengri.
Varðandi fyrri röksemdina má benda á fjölda greinar-
gerða, þar sem stungið er upp á leiðum til að llýta fyrir
þeim, sem augljóslega eru hæfir til langskólanáms. Væri
auðvelt að stuðla að því, að þeir tækju stúdentspróf a. m. k.
ári fyrr en nú er, með því einfaldlega, að láta nemendur
þessa halda þeim hraða gegnum skóla, sem eðlilegur náms-
þroski þeirra leyfir. Hvað síðari röksemdina snertir, er það
skoðun Félags gagnfræðaskólakennara í Reykjavík, að ís-