Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 136
MENNTAMÁI-
] 30
SKÝRSLA STJÓRNAR L.S.F.K.
fyrir tímabilið 14. júní 1962—5. júní 1964.
Formáli.
Eins og samþykktir !). fulltrúaþfngs L.S.F.K. bera með sér, var stjórn
samtakanna sérstaklega ætlað að vinna að eftirtöldum málum:
I. Launa- og kjaramálum samkvæmt lögttm um kjarasamninga í
samræmi við samþykktir þingsins.
II. Breytingum laga tim menntun og réttindi kennara og skóla-
stjóra í gagnfræða- og framhaldsskólum.
III. Sjá sambandinu fyrir húsnæði til stjórnarstarfa, gjarnan í sam-
vinnu við F.G.R.
IV. Auk þess skyldi starfa milliþinganefnd að tillögum um mennt-
ttn og réttindi verknámskennara í framhaldsskólum og hafði
stjórnin nokkur afskipti al' störfum hennar. Hún skyldi skila
störfum á 10. lulltrúaþingi L.S.F.K.
Unt fyrsta liðinn er sérstaklega tekið fram í samþykkt þingsins, að
stjórn L.S.F.K. sé falið að vinna að þeim breytingum, sem þar er getið,
en óskað nánari sundurliðunar og skilgreiningar.
Þá lá einnig fyrir mál frá síðasta kjörtfmabili, sem ekki var lagt
lyrir j>ingið, né lieldur rætt j>at, J>. e. málsókn út af ágreiningi um
greiðslu fyrir yfirvinnu fastráðinna kennara, sem stjórn L.S.F.K. hafði
staðið að ásamt S.Í.B.
I. Kja rasa rn n ingar.
Samkvæmt lögum um kjarasamninga á B.S.R.B. að fara með samn-
inga fyrir aðildarfélög sín að J>ví er tekur til a) fastra lautia, b) vinnu-
tíma og c) greiðslu lyrir yfirvinnu. Aðildarfélög B.S.R.B. skulu sjálf
semja um aðrar greiðslur eða íríðindi.
d) Laun stundakennara falla ekki undir lög um kjarasamninga, en
eru ákveðin og auglýst af ráðuneyti í samráði við samtök kennara.
1. Föst lann.
Það varð fyrsta starf sljórnar L.S.F.K. ;tð undirbúa og semja tillögur
unt laun framhaldsskólakennara og afhenda J>ær Kjararáði, samninga-
ncfnd B.S.R.B. Hafði stjórnin í ]>essu starfi sínu samvinnu við stjórn
F.G.R. eftir því sem til náðist og auk Jjcss Jjá aðila úr launamála-
nefnd 9. fulltrúaþingsins, sem búsettir voru í Reykjavík og voru við-
látnir.
Fins og gert hafði verið ráð fyrir var leitað samvinnu við önnur
kennarasamtök, S.l.B. og Félag menntaskólakennara, og var ætlunir.