Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 115
menntamál
109
;i m3 og hámark hækki úr kr. 175.000,00 í 250.000,00. Jafnframt lengist
hiðtími lil lánsréttinda tir 3 árum í 5 ár.
Þó skal þeim sjóðfélögum, sem fullnægt hafa þriggja ára iðgjalda-
greiðslu fyrir 1. sept. 1905, gefinn kostur á að fá lán miðað við þá
hámarksstærð fbúðar, sem hingað til liefur gilt.
Regiur þessar gilda um þau lán, sein eru óútborguð 1G. apríl 1964."
Með samþykkt þessari hafa barnakennarar öðlazt jafnrétti á við
lánþega í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, því að á sama tíma og
sá sjóður veitti allt að 210 þús. kr. lán á íbúð, lánaði Lffeyrissjóður
barnakennara ekki nema 175 þúsund kr.
Frarðslu myndir.
A fulltrúaþinginu 1962 var nokkuð rætt um fræðslumyndir og það
mikilvæga hlutverk, sem þær ættu að gegna í skólastarfinu. Var þá
skýrt lrá því, að Fræðslumyndasafn ríkisins hefði hafið undirbúning
að útgáfu kyrrmyndaflokka úr landafræði íslands og náttúrufræði. Þar
sem Samband íslenzkra barnakennara tilnefnir mann í stjórn safnsins,
þykir rétt vegna skólastarfsins og kennara úti um land að skýra hér
frá því helzta, sem gerzt hefur í málinu síðan og að hverju er stefnt
með þessari útgáfustarfsemi.
Siikum ýmissa byrjunarörðugleika dróst það lengur en uppltaflega
var til ætlazt, að útgáfan hæfist. Fyrstti mvndaflokkarnir komu ekki
fyrr en haustið 1963, en komu síðan með stnttu millibili fram eftir
vetri. Alls hafa þannig verið gefnir út á skólaárinu 9 myndaflokkar
til notkunar í barna- og unglingaskólum. Eru þeir þessir: Mýra- og
Uorgarf jarðarsýsla, Árnessýsla, Skagafjarðarsýsla, Norður-Múlasýsla,
Suður-Múlasýsla, íslenzkir fuglar og íslenzkar jurtir 1—11. Auk þess
gaf safnið út 4 flokka um starfsíþróttir (matreiðslu).
Haldið verður áfram með sýslur landsins og önnur verkefni, eftir
því sem efni og ástæður leyfa. Er þess að vænta, að nokkrir flokkar
til viðbótar verði tilbúnir með haustinu og fleiri bætist við fyrstu
skólamánuðina.
Húseignin.
Húseign sambandsins að Þingholtsstræti 30 hefur eins og áður verið
leigð að hálfu, en að hálfu verið notuð í þágu samtakanna.
Ekki hvíla aðrar skuldir á eigninni en lán úr Lífeyrissjóði barna-
kennara að upphæð kr. 95.832,91.
Aíen ntamál.
Menntamál hafa komið út með svipuðum hætti og áður. Ritstjóri
er dr. Broddi Jóhannesson, en afgreiðslu annast Pálmi Jósefsson.