Menntamál - 01.09.1964, Page 150
144
MENNTAMÁL
af málefnum handavinnukennara pilta, afgreiddi liún ekki inál þetta,
en sendi það menritamálaráðuneytinu ári umsagnar.
Einn handavínnukennari við héraðsskúla leitaði til stjórnarinnar
vegna þess, að hann var látinn taka laun sem 7 mánaða kennari, þótt
hann starfaði við 8 rnánaða skóla. Þegar að var gáð kom í ljós, að
þannig var ástatt um allmarga handavinnu- og leikfimikennara.
Þar sem stjórn L.S.F.K. taldi þetta algert brot á 13. gr. kjatadóms
tók hún málið upp við fræðslumálastjóra og vinnur enn að lausn þess.
Stjórnin gerði tilraun til Jiess með aðstoð B.S.R.B. að kæra nokkra
kennara inn í 18. og 19. launaflokk, Jiar sem hún taldi, að menntun
Jreirra hefði verið vanmetin, er þeim var raðað í launaflokka.
Búizt er við dómi kjaranefndar í sumum þessara mála næstu daga,
en enn sem komið er liggur enginn dómur fyrir varðandi kennara.
Hafnir eru samningar við samninganefnd ríkisstjórnarinnar um
greiðslur fyrir vörzlu í heimavistarskólum. Samningar Jjessir eru á
frumstigi og ekki hægt að segja neitt frá árangri af þeim.
Einnig standa fyrir dyrum samningar um heimavinnu kennara við
Kennaraskóla lslands, og er Jjess vænzt, að þeir hefjist næstu daga.
Samningar um heimavinnu handavinnukennara í framtíðinni munu
dragast fram yfir miðjan október a. m. k.
Þá hafa staðið yfir samningar milli L.S.F.K. og S.Í.B. annars vegar
og fulltrúa frá menntamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg hins veg-
ar um túlkun og framkvæmd á ýmsum atriðum kjaradóms.
Seinlega gengur að fá Jressum samningum fram haldið, sem stafar
af því, að samninganefnd ríkisstjórnarinnar hefur ekki fengizt lil að
staðfesta Jjau atriði, sem þegar hefur náðst samkomulag um.
Skrifað 5. október 1964.