Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 94
88
MENNTAMÁL
Félags- og menningarmál samlahanna.
„18. fulltrúaþing S.Í.IL, haldið í Reykjavík (i. og 7. júní 1964, telur
tímabært, að sambandið taki allt húsnæði sitt til alnota fyrir skrif-
stofubald, félagsstarfsemi o. ti.
Enn fremur að ráðinn verði fastur starfsmaður til að annast dagleg
störf fyrir stjórn samtakanna, almenna fyrirgrciðslu, afgreiðslu
„Menntamála" o. 11.
Þingið beinir því til stjórnarinnar, að athugaðir séu möguleikar á
því að reka skrifstofuna í samvinnu við Byggingarsamvinnufélag
barnakennara.
Þá telur þingið nauðsynlegt að komið vcrði á fót:
a) safni innlcndra og erlendra bóka og tímarita um kennslu og upp-
eldismál. Enn fremur safni innlendra og erlendra kennslubóka,
kennslugagna og áhalda.
Leitað sé um þetta samvinnu við fræðsluyfirvöld ríkis og Reykja-
víkurborgar.
b) safni hvers konar innlendra og erlendra gagna um félags- og kjara-
mál kennara.
Á vegum safnsins verði útlánsdeild og lestrarsalur.
Þingið telur rétt að tímaritaútgáfu samtakanna sé hagað á þann
veg, að „Menntamál" komi út, t. d. tvisvar á ári, í svipuðu formi og
verið hefur, aflað sé fleiri áskrifenda utan kennarastéttarinnar og
ritið enn fremur selt hjá bóksölum. Jafnframt yrði gefið út af S.I.B.
rit, sem kæmi út mánaðarlega yfir starfstíma skólanna, og flytti það
aðallega innlendar og erlendar fréttir og fróðleik um skólamál og
yrði vettvangur umræðna um uppeldis- og lélagsmál.
Þá felur þingið stjórninni að hefja eins fljótt og unnt er undir-
búning að útgáfu kennslutækja og hjálpargagna fyrir kennara á svip-
uðum grundvelli og starfsemi „Lærerforeningernes Materialudvalg" í
Dánmörku."
Kosningar:
Frímann Jónasson, skólastjóri í Kópavogi, og Stefán fóns-
son, rithöfundur í Reykjavík, sem ltáðir hafa setið lengi
í stjórn sambandsins, báðust eindregið undan endurkosn-
ingu. Voru þeirn þiikkuð mikil og góð störf í þágu kennara-
samtakanna. Kosnir voru í þeirra stað: Svavar Helgason,
kennari í Reykjavík, og Páll Guðmundsson, skólastjóri á
Seltjarnarnesi. Að öðru leyti var stjórnin endurkosin. Stjórn-
ina skipa nú: Skúli Þorsteinsson, formaður, Ingi Kristinsson,