Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 76
70
MENNTAMAL
Frá Fræðslumálaskrifstofunni.
Starfsfrœðsla.
Menntamálaráðuneytið liefur falið Stefáni Ólafi Jónssyni, kennara
í Reykjavík, að skipuleggja og leiðbeina um starfsfræðslu í skólum
skólaárið 1964—’65. Hann var í ársorloíi frá kennslu síðastliðinn vet-
ur og kynnti sér starfsfræðslu í skólum á Norðurlöndum, aðallega /
Danmörku.
Námskeið fyrir íslenzka dönskukennara við Kennaraháskólann
i Kaupmannahöfn dagana 2,—15. ágúst t'J64.
Kennaraháskóli Danmerkur hafði veg og vanda af þessu námskeiði,
en danska ríkið greiddi húsnæðis- og fæðiskostnað þátttakenda í
skólavist háskólans að Emdrupvegi 166. Fargjöld sín greiddu þátttak-
entlur sjálfir.
Stjórnandi námskeiðsins og kennari var lektor Ragna Lorentzen, og
fórst henni bæði stjórn og tilsögn afburðavel úr hendi.
Dagskrá var í höfuðdráttum þcssi:
Dag hvern (ncma 5/8 og 12/8) frá kl. 9—12 leiðbcindi Ragna Lorent-
zen í danskri tungu, hljóðfræði hennar og málfræði. Lagði hún höfuð-
áherzlu á framburð með miklum framburðaræfingum, og aðallesefnið
var skáldsagan Lþgneren eftir Martin A. Hansen, en grijtið niður í
ýmis fleíri ritverk. 5. ágúst var farið i ferðalag um Norður-Sjáland og
12. ágúst um Suður-Sjáland og þær ferðir tengdar bókmenntalegu efni,
sem fyrir var tekið á námskeiðinu.
8. ágúst síðdegis var gengið um göndu Kaupmannahöfn undir leið-
sögn 1*. Ilsþes rektors, en síðdegis 14. ágúst heimsótt safn Árna Magn-
ússonar. Aðra daga síðdegis var hlýtt á fyrirlestra ýmissa færra fræði-
manna um danskar bókmenntir almennt og einstaka þætti þeirra.
Fjórum sinnum voru síðkvöld einnig notuð í jtágu námskeiðsins.
M. a. las rithöfundurinn H. C. Branner eina af smásögum sínum og
svaraði fyrirspurnum, leikkonan, lrú Ellen Malberg, las upp og söng,
ritstjórinn, Emil Fredenksen, rabbaði um skopteiknarann Storni P.
i>að er mál þátttakenda, að námskeið Jjetta liali vel tekizt. Þátttak-
éndur voru þessir:
Adda Geirsdóttir, Laugarvatni
Ármann Halldórsson, Eiðum