Menntamál - 01.09.1964, Page 20
14
MENNTAMÁL
lagsins. Hann var lærðnr járnsmiður. Hann hneigðist að
söng og hljóðfæraslætti, lærði hér heima, eftir því sem föng
voru á, var einn vetur við hljómlistarnám í Kaupmanna-
höfn. Gerðist síðan söngkennari við skóla í Reykjavík, stofn-
aði söngfélag, gaf út sönglagahefti og var einn af brautryðj-
endum á sviði söngmálanna.
Tómas Hallgrímsson var þá 47 ára. Hann tók embættis-
próf í læknisfræði við Hafnarháskóla, gegndi læknisstörf-
um í Reykjavík, en kenndi síðan lengi við læknaskólann.
W. G. Spence Paterson var Skoti, 35 ára að aldri. Hann
hafði guðfræðipróf frá Edinborgarháskóla, kom hingað til
lands sem umboðsmaður félags, er ætlaði að starfrækja
brennisteinsnámur í Krýsuvík. Hann ílentist hér og kenndi
um skeið í Möðruvallaskóla, síðar í Flensborgarskólanum.
Hann lærði vel íslenzku, þótti sérlega góður kennari, eink-
mn í efnafræði og ensku.
Morten Hansen var þá 34 ára. Hann var guðfræðingur,
var lengi kennari, síðan skólastjóri við Barnaskóla Reykja-
víkur. Hann var mikils metinn skólamaður. Hann gaf út
nokkrar námsbækur.
Steingrímur H. Johnsen var 43 ára. Hann var guðfræð-
ingur frá Hafnarháskóla, en gerðist söngkennari við Latínu-
skólann, eftir fráfall Péturs Guðjohnsens. Hann var mörg
ár skrifstofustjóri Alþingis.
Jón Þórarinsson var 35 ára við félagsstofnunina. Hann
sigldi til Hafnarháskóla, tók þar heimspekipróf', kynnti sér
síðan uppeldisfræði og skólamál. Hann var síðan forstöðu-
maður Flensborgarskólans, alþingismaður og skipaður fyrsti
fræðslumálastjóri landsins. Hann vann flestum meir að ís-
lenzkum fræðslumálum alla tíð.
Þetta var sú sveit, sem stofnsetti félagið og markaði |)ví
starfssvið. En á fyrsta aðalfundi félagsins, sem haldinn var
um sumarið, gerðist það til nýlundu, að fjölmargir menn,
sem ekki fengust við kennslu, voru bornir upp til inntöku
í félagið og samþykktir. Sýnir það Ijóst, að mikill og góður