Menntamál - 01.09.1964, Page 89
MENNTAMÁL
88
Annar útbúnaður kennslustofunnar skal samræmast fjöl-
breytni kennslunnar.
Ég get bent á ýmsar ráðstefnur, þar sem þessi mál hafa
verið til umræðu, en vil aðeins nefna 2 þær síðustu.
1. Alþjóða-skólabyggingarráðstefna, haldin á vegum
„UNESCO“ í Genf 1957.
2. Alþjóða-skólabyggingarráðstefna, haldin á vegum
„UNESCO“ í London 1962.
Á báðum þessum ráðstefnum voru gerðar samþykktir
samhljóða því, sem að framan getur.
Stærsti skólahúsgagnaframleiðandi í Þýzkalandi segir ný-
lega í bréfi til undirritaðs: í Evrópu eru nú næstum ein-
göngu notuð hreyfanleg húsgögn — stóll og borð aðskilin —,
en í Ameríku eru þó að einhverju leyti enn notuð sam-
byggð húsgögn. Er þá stóll oftast færanlegur upp og aftur,
en segja má að notkun þeirra lari ört minnkandi, sbr. bók
Alfred Roth, „Hið nýja skólalnis“.
Hinn þýzki skólahúsgagnaframleiðandi áætlar, að í Ev-
rópu séu enn aðeins 5% af skólahúsgögnum sambyggð.
Ofanrituð atlnigasemd við greinina í Menntamálum um
ný skólahúsgögn er rituð vegna þeirrar tilhneigingar, sem
skotið hefur upp kollinum hér í bæ undanfarið, að inn-
leiða hér í skóla sambyggð húsgögn þeirrar tegundar, sent
aðrar þjóðir eru að losa sig við.