Menntamál - 01.09.1964, Qupperneq 126
120
MENNTAMÁL
en 7 fræðsluskrifstofum utan Rcykjavíkur og yfir þær settir
fræðslustjórar nieð svipuðu verksviði og nú gilclir um Reykjavík.
19. Að endurskoðuð verði ákvæði um kjör ráðskvenna í heimavistar-
skólum og jafnframt kveðið á um starfssvið þeirra og menntun.
Þetta verði gert í samráði við samtök heimavistarskólastjóra og
kennara.
20. Fundurinn liarmar alveg sérstaklega, hve seinlega gengur mcð
afgreiðslu og athugun á tillögum og ábendingum skólamanna
yfirleitt hjá fræðsluyfirvöldunum, og bendir á, hversu alvarlegttr
afleiðingar og lamandi áhrif það getur haft á þróun kennslu- og
skólamála í landinu, ef áfram er haldið á þeirri braut. Treystir
fundurinn menntamálaráðherra til þess að hlutast til um, að
breyting vcrði hér á hið fyrsta.
Fundurinn kaus þriggja manna nefnd til þess að gera tillögur um
launamál skólastjóra og vera stjórninni til aðstoðar í samningaum-
ræðum, er varða kjör félagsmanna.
F’élagið festi á árinu kaup á sumarbústað Kjartans Tliors í landi
Hagavíkur við Þingvallavatn og rak sumarbúðir þar í sumar fyrir
skólastjóra og fjölskyldur þeirra. Þarna geta dvalið 10—15 manns í
senn. Fullskipað var í Bakkaseli í sumar, og komust færri að en vildu.
Vinnur stjórn félagsins áfram að lausn sumarbúðamálsins, og mun
félagið færa út kvíarnar, eftir því sem þörf krefur.
Samjrykkt var að innheimta ársgjöld félagsmanna með póstkröfu.
Þá samjrykkti fundurinn að efnt skyldi til skólastjóramóts árið 1966.
Stjórn félagsins var öll endurkjörin, en liana skipa: Hans Jörgenson,
Rvík, form., Páll Guðmundsson, Seltjarnarnesi, gjaldkeri, og Vilbergur
Júlíusson, Silfurtúni, ritari. Varamenn eru Hermann Eiríksson, Kefla-
vík, og Sigurbjörn Ketilsson, Ytri-Njarðvík.
Fundurinn sendi forseta íslands, herra Asgeiri Ásgeirssyni, samúðar-
kveðjur vegna andláts forsetafrúarinnar Dóru Þórhallsdóttur.