Menntamál - 01.09.1964, Síða 85
MENNTAMÁL
79
dýranna og lífskjörum þeirra og sú sjálfsagða skylda okkar
mannanna að sýna þeim alltaf fyllstu góðvild og hjálpsemi.
Höfundur skrifar ágætt mál, létt og ljóst, og prófarka-
lestur er prýðilegur, svo sem vera ber. Gjarna hefði ég kosið
efnisyfirlit, það er jafnan til hagræðis. Þá hefði ég kosið,
að EgiII hefði rætt við öll húsdýrin, en ekki skilið tvö eftir,
og einnig við krumma gamla. Vísur og ljóð hefðu líka mátt
vera fleiri og einnig spurningar. En þetta eru aðeins smá-
atriði, sem bæta má úr í næstu útgáfu. Og vonandi fáum
við annað hefti fljótlega, því að ekki skortir höf. efni og
hugmyndaflug. F.g las Jæssa bók mér til mikillar ánægju
og tel, að hún hafi þörfu hlutverki að gegna í þágu skól-
anna og ]);i ekki sízt í sambandi við átthagafræðikennsluna
í 8 og 9 ára deildunum. Þar er hún tilvalin til lestrar og
til að laða fram þær eigindir, sem höfundur víkur að í þeim
formálsorðum, sem ég vitnaði til fyrr.
Það er ])ví full ástæða til að benda kennurum 8—10 ára
barna á að kynna sér bók þessa og nota hana í starfi sínu.
Hver barnaskóli ætti að eiga einn eða fleiri lesflokka af
henni, svo að hún gæti komið að sem beztum notum. Þá er
og einkar vel til fallið, að foreldrar kanpi bókina handa
börnum sínum til lestrar og samræðna.
Ég flyt höfundi, teiknara og útgefanda alúðarþökk l'yrir
])essa snotru, þörfu og hugþekku bók.
Sigurður G un narsson.
Björn Danielsson: SÍLAVEIÐIN.
Æfingar i lestri og litun.
Mikill skortur er á heppilegu lesefni lyrir byrjendurna,
einkum þó þá, sem þurfa að fara hægt yfir. Það var því
ánægjulegt að fá í hendur í fyrrahaust lítinn pésa með
skemmtilegri sögu beint úr hugarheimi yngstu nemendanna.
Ekki spillti það, að uppsetning og myndskreyting var með
ágætum.