Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 138
132
MENNTAMÁL
Kjararáð endurskoðaði tillögur sínar og gerði breytingar á þeim 2.
nóv. og aftur 16. nóv. Aðalitreytingin varðandi framhaldsskólakenn-
ara var að hækka kennara með cand. mag.-prófi um flokk. Sömuleiðis
voru kennarar, sem höfðu kennarapróf eða stúdentspróf að viðbættu
tveggja ára námi, sem fræðslumálastjórn metur gilt, liækkaðir um
flokk.
Nokkru síðar en þetta var sótti kennaraféiag K.I. um inngöngu í
L.S.F.K. samkvæmt ábendingu Kjararáðs og bar því landssambands-
stjórn að gera breytingartillögur fyrir það félag og flytja þa:r fyrir
Kjararáði.
Eftir nokkurn undirbúning var það loks gert með bréfi 4. jan. 1963.
Þá hafði á sama tíma verið send fyrirspurn til heimspekideildar
H.I. um nám og námstíma kennara með B.A.-prófi ásamt viðbótar-
próli í uppeldisfræði. Svar barst skriflegt í lok desember 1962 og voru
því einnig gerðar tilliigur lil hækkunar á þeim samkvæmt upplýs-
ingum H.í. Að þessu sinni voru kennarar með B.A.-próf frá H.í.
ásanit viðbótarprófi í uppeldisfræði hækkaðir um einn launaflokk.
19. jan. 1963 voru enn gerðar tillögur fyrir K.í. og sérkennaraskól-
ana og afgreitt í Kjararáði þann 23. janúar.
Samninganefnd ríkisstjórnarinnar lagði fram tillögur að launastiga
og röðun í launaflokka 7. l'ebr. 1963. Launafíbkkar voru samkvæmt
þeim tillögum 25, og í ýmsum atriðum voru tillögur þessar frábrugðn-
ar tillögum Kjararáðs.
Nokkrar breytingar voru fljótlega gerðar í ýmsum atriðum, sem hér
er ekki unnt að rekja nánar.
Stjórn Landssambandsins skrifaði fjármálaráðherra brél vegna röð-
unar framhaldsskólakennara í launaflokka og formaður gekk á fund
hans og ræddi við hann uni tillögurnar og viðhorf kennara til þeirra.
B.S.R.B. óskaði eftir traustsyfirlýsingu frá aðildarfélögum bandalags-
ins, og var hún veitt með bréfi dags. 19. nóv. 1962. Þó með þeim
fyrirvara, að ágreiningsatriði, sem ekki næðist samkomulag um, yrði
útkljáð af Kjaradómi.
Það var loks 8. apríl 1963, að samningar tókust milli Kjararáðs
og santninganefndar ríkisstjórnarinnar um fjölda launaflokka (28) og
röðun opinberra starfsmanna i þá, en leitað var til kjaradóms um
úrskurð varðandi launaupphæð og vinnutíma.
Dómur Kjaradóms var kveðinn upp í byrjun júlí 1963 og birtist
hann ásamt kröfugerð beggja málsaðila í tímariti B.S.R.B., Ásgarði,
XII. árg., 1. tbl., júlí 1963.
Hér með hefði hinum langvinnu og erfiðu samningum átt að vera
iokið og starfi stjórnar L.S.F.K. að gerð þeirra einnig. Því fór þó
fjarri, að svo væri. Óánægja fjölmargra framhaldsskólakennara var