Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 68
MENNTAMÁL
62
vista þarf í vanvitaskóla, kæmust þangað sem fyrst. Við lok
2. skólavetrar væri börnunum úr lestæknibekkjunum kom-
ið fyrir í deildum, sem hæfðu námsgetu þeirra, á grund-
velli umsagna lestæknikennarans og niðurstaðna sálfræði-
deildar. Fjórir möguleikar væru þá fyrir hendi:
a) börn með eðlilega námsgetu, sem náð befðu viðun-
andi lestrargetu, færu í venjulega !) ára bekki.
b) börn með normalgreind, sem enn ættu við lestrarörð-
ugleika að etja, færu í 9 ára lesbekki.
b) börn með grvt. 70—85, sem að mati sálfræðideildar
og lestæknikennara réðu ekki við nám í normalbekk,
færu í hjálparbekki, án tillits til lestrargetu viðkom-
andi.
d) börn með grvt. undir 70, sem að mati lestæknikenn-
ara og sálfræðideildar gætu ekki bjargað sér í hjálpar-
bekk, færu í vanvitaskóla, án tillits til lestrargetu.
1. e) í lesbekkjunum er ætlunin, að fram fari sérkennsla
lestregra barna, og er þá gert ráð fyrir, að sérkennsla sú, sem
nú er framkvæmd með „Iesh jálp“ og í einkatímum, sé lögð
niður. Námsefni lesbekkja í öðrum greinum en móðurmáli
á að lylgja námsskrá venjulegra bekkja sama aldursstigs. En
í móðurmáli þarf vikulegur stundafjöldi að vera mun meiri,
enda þarf lesbekkjakennurunum að gefast kostur á svoköll-
uðum skiptitímum, þ. e. a. s. tímum, sem aðeins hluti nem-
endanna sækja.
1. d) bess má geta, að í nokkrum skólum í Reykjavík
hal'a afbrigðilegu börnin verið valin saman í fámenna
bekki, og virðist það hafa gefið góða raun, þrátt fyrir erfið-
ar aðstæður á margan hátt.
2. Eins og kunnugt er hefur vinvitaskóli starfað hér
með góðum árangri undanfarin þrjú ár. S.l. vetur var nem-
endafjöldinn um 60.
3. Nauðsynlegt er að koma upp stofnun fyrir heyrnar-
þjálfun og talkennslu, sem foreldrar gætu leitað til með
börn innan skólaskyldualdurs, auk þess sem hún væri mið-