Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 25
menntamál
1«)
Islenzkir skólafrömuðir í boði dönsku
kennarasamtakanna í Árósum.
Menntamál komn að máli við Skúla Þorsteinsson, for-
'Lann S. I. B., í tilefni af því, að honum var boðið ásamt
Helga Elíassyni, fræðslumálastjóra, til þings dönsku kenn-
arasamtakanna í Árósum í sumar, og inntu hann frétta af
íörinni.
— Fulltrúaþing Danmarks Lærerforening stóð yfir í tvo
(Hga, en að því loknu hófst þriggja daga skólamót, sem
haldið var í tilefni 150 ára afmælis skólatilskipunarinnar
frá 1814, en Danir voru meðal fyrstu þjóða, sem komu á
alrnennri fræðsluskyldu, sagði Skúli.
— Hver voru helztu viðfangsefni fidltrúaþingsins?
~ Á fulltrúaþinginu var aðallega rætt um margþætta
starfsemi samtakanna og launamál. Dönsku kennarasamtök-
m hyggja á kröfugerð í þeim efnum næsta vor, en þá verða
Hunamálin endurskoðuð á opinberum vettvangi. Formaður
diinsku kennarasamtakanna gat þess í setningarræðu, að
skilningur stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka á nauðsyn
þess að bæta launakjörin virtist fyrir hendi, en það væri
aunað mál, hvort sá skilningur dygði, þegar til samninga
°g framkvæmda kæmi. Skólamál í víðari merkingu voru
hins vegar aðallega r;edd á skólamótinu.
— Og hver voru helztu málin, sem þar voru rædd?
— Mikið var rætt um kennaramenntun, uppeldisgildi
hokmennta, vandamál kennslunnar á gagnfræðastigi og nám
yngstu nemendanna í barnaskólum. Vinnubrögðum á þing-
11111 var þannig hagað, að þátttakendur skiptust í hópa, sem
skiluðu síðan áliti til umræðu og samþykktar. Fundir stóðu