Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 86
80
MENNTAMÁL
Það er meiri vandi en margur hyggur að sameina les-
tæknileg sjónarmið óþvingaðri og eðlilegri frásögn. En þetta
hefur höfundi þessarar litlu sögu, Birni Daníelssyni, skóla-
stjóra á Sauðárkróki, einmitt tekizt mæta vel. Orðaforðinn
er takmarkaður og valin létt og auðskilin orð, án þess að
þrengt sé um of kosti málsins. Leturgerð, línulengd og
orðafjöldi á síðu er vel við hæfi, og myndirnar, sem Hall-
dór Pétursson hefur teiknað á hverja síðu, eru lifandi og
skemmtilegar. Það er fagnaðarefni, að í haust mun von
annars bæklings af sama tagi frá þessum höfundi.
Þ. S.
Gjiðmundur I. Guðjónsson og Marinó L. Stefánsson:
SKRIFT ARMÆLIK V ARÐI.
Nýlega kom á markaðinn safn rithandarsýnishorna úr
skriftarprófum 12 ára barna í Reykjavík. Þetta eru dæmi
um skrift 22 einstaklinga og eru 4 línur með hverri rithönd.
Tveim sýnishornum, að einhverju leyti ólíkum, er raðað
saman á síðu með sömu einkunn, og eru einkunnir gefnar
í hálfum tölum og heilum frá 5—9.5. Ætlazt er til, að þetta
verði mælikvarði fyrir einkunnagjafir í barnaskólum, er
kennarar geti haft til hliðsjónar, þegar skrift eldri barna er
metin, einkum við barnapróf.
Sýnishornunum er komið fyrir öðrum megin á löngum
renningi, sem síðan er víxlbrotinn. Með þessum hætti verð-
ur mælikvarðinn sérlega þægilegur í notkun. Guðmundur I.
Guðjónsson og Marinó L. Stefánsson hafa valið sýnishornin
og metið þau til einkunna, og mun ekki öðrum betur treyst-
andi til þess vandaverks. Skriftarmælikvarðinn er gefinn út
að tilhlutan fræðslumálastjórnarinnar og prentaður í Litho-
prent h.f.
Þ.S.