Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 92
86
MENNTAMAL
hækkun. Benti hann á að skýra þyrfti þau mál nánar fyrir
almenningi og lagði áherzlu á nauðsyn þess, að launþegar
stæðu fast saman í kjarabaráttunni.
Prófessor Riehard Beck flutti kveðju frá Vestur-íslend-
ingum og tjáði í skemmtilegri ræðu og á viðfelldinn hátt
hlýhug sinn til íslenzkra kennara.
Aðalmál þingsins voru skýrsla stjórnar, launamálin og
menningar- og félagsstarf samtakanna. Fyrri þingdaginn
voru mál reifuð og starfsmenn þingsins kosnir. Seinni dag-
inn voru álit nefnda rædcl og samþykktir gerðar. Þingstörf
stóðu óslitið báða dagana og langt fram á nótt seinni daginn.
Á laugardag sátu fulltrúar hádegisverðarboð menntamála-
ráðherra í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, og á sunnu-
dag bauð borgarstjórinn í Reykjavík þingfulltrúum í síð-
degiskafli í Sigtúni.
Forsetar þingsins voru kjörnir: Eiríkur Sigurðsson, skóla-
stjóri á Akureyri, Þorgeir Ibsen, skólastjóri í Hafnarfirði,
og Eiríkur Stefánsson, kennari í Langholtsskóla. Ritarar
voru kjörnir: Kári Arnórsson, skólastjóri í Húsavík, og
Þorsteinn Matthíasson, skólastjóri á Blönduósi.
Þingið gerði eftirfarandi samþykktir:
Launamál.
,,18. lulltrúaþing Sambands íslenzkra barnakennara, haldið í Mela-
skólanum (i. og 7. júní 1964, fagnar þeim áfanga, sem náðst hefur í
launa- og kjaramálum barnakennara á s.l. ári. Þingið þakkar stjórnum
S.Í.B., H.S.R.B. og Kjararáði stiirf [teirra og telur, að liinir fyrstu kjara-
samningar hafi eftir atvikum tekizt vel, enda þótt starf barnakennarans
sé enn ekki fyllilega metið miðað við aðra starfshópa.
Þingið gerir eftirfarandi ályktanir í launa- og kjarantálum:
1. Þingið mótmælir eindregið úrskurði Kjaradóms frá 31. marz 1964,
er hann felldi um 15% launahækkun ríkisstarfsmanna.
2. l>ingið telur nauðsynlegt að krefjast endurskoðunar á gildandi
kjarasamningi rlkisstarfsmanna, jafnskjótt og lög heimila.
3. Þingið skorar á stjórn H.S.R.B. að vinna að Jtví, að rikisstarfs-
inenn fái notið þegar í stað hliðstæðrar verðtryggingar launa eins