Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 95
MENNTAMÁL
89
varaformaður, Ársæll Sigurðsson, ritari, Gunnar Guðmunds-
son, gjaldkeri og Þórður Kristjánsson, Páll Guðmundsson
og Svavar Helgason, meðstjórnendur. Varastjórn skipa: Þor-
steinn Sigurðsson, Áslaug Friðriksdóttir, Ingimundur Ol-
afsson, Marinó L. Stefánsson og Þráinn Guðmundsson.
Endurskoðendur voru kjörnir: Klemenz Þórleifsson og
Guðmundur Magnússon.
Þá voru kjörnir 13 fulltrúar á þing Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja.
Frímann jónasson var í þinglok kosinn heiðursfélagi S.Í.B.
fyrir mikil og vel unnin störf í þágu samtakanna, en hann
hefur starfað í samtökunum í 41 ár, þar af setið í stjórn
sambandsins í 14 ár, lengst af sem varaformaður, og oft
gegnt formannsstörfum, er formaður var ekki til staðar.
Framhaldsmenntun kennara.
„18. fulltrúaþing S.Í.B., haldið í Reykjavík fi. og 7. júní 1964, telur
nauðsynlegt, að nú þegar verði hafizt handa um undirbúning nám-
skeiða fyrir starfandi kennara í tengslum við K.Í., sem veittu fram-
haldsmenntun, liliðstæða eins árs námi við kennaraháskóla á Norður-
löndum.
Þingið lítur svo á, að hin öra breyting þjóðfélagsins skapi skólun-
um sífellt ný verkefni og aukna ábyrgð og skólarnir verði að haga
störfum sínum í samræmi við þessa þróun.
Þingið telur, að hjá okkur hafi of lítil áherzla verið lögð á hina
uppeldislegu hlið skólastarfsins, og vill benda á, að einkenni nú-
tíma skóla crlendis er hið uppeldislega starf.
Þingið telur mikilsvert, að starfsaðferðirnar í skólum okkar hafi
meira uppeldisgildi en verið liefur, og beri Jiví að leggja aukna
áherzlu á að gera nemendur sjálfstæða í námi. Meiri gaumur sé gef-
inn að persónuuppeldi, þroskun listlineigðar, félagslegu uppeldi, upp-
eldi í hagsýni og ráðdeild ásamt líkamlegu uppeldi.
Tilhögun námskeiðanna sé miðuð við [jað, að starfandi kennurum
hvarvetna að af landinu sé kleift að sækja þau án verulegra tafa frá
kennslustörfum. Námsefninu sé t. tl. skipt í afmarkaða hluta, þannig
aö kennsla fari fram sumpart að sumarlagi, aðallega fyrir kennara
utan Reykjavíkur, og sumpart síðdegis eða á kvöldin, aðallega fyrir
kennara í Reykjavík og nágrenni.