Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 132
MENNTAMÁL
126
Örstedsstiginn er leystur af hólmi af hinum svokallaða
„13 stiga“, en það er þrískipt einkunnakerfi með töluna 8
sem tákn meðalárangurs og töluna 13 sem tákn liins sjald-
gæfa afburðaárangurs. Breytingin frá Örstedsstiganum með
sínum neikvæðu lágeinkunnum til þessa nýja þriggja þrepa
stiga hefur valdið nokkrum örðugleikum og komið róti á
hugina.
Enn er vaxandi aðsókn að hinum frjálsu 9. og 10. bekkj-
um, og svo virðist sem viðleitnin, til að skapa samræmda
prófinu upp úr 9. bekk virðingu og álit sem mótvægi gegn
þrýstingnum á gagnfræðaprófið, hafi heppnast vel.
Kennaraskorturinn er enn mjög tilfinnanlegur. llrn það
bil 5000 stöður er reynt að fylla með yfirvinnu föstu kenn-
aranna, útsendingu kennaranema í skólana og hagnýtingu
ósérmenntaðs vinnuafls. Fjöldi kennaraefnanna, sem litskrif-
ast frá kennaraskólunum nálgast nú ört 3. þúsundið, og
bætir sú þróun ástandið verulega, svo að útsending allra
kennaraefna til 5 mánaða kennslustarfa í skólunum eins og
tíðkazt hefur fer að verða óframkvæmanleg.
Stærsta vandamálið í dag er það, hvort nýbygging skóla-
húsnæðis getur vaxið jafnört og framleiðsla kennaraefn-
anna. Höftin á byggingarframkvæmdum s.l. ár hafa verið
mjög tilfinnanleg, og jafnvel þótt skólabyggingar úti um
sveitir setji svip sinn á danskt landslag, eru Danir langt á
eftir hvað skólahúsnæði snertir, bæði um almennar skóla-
stofur og sérstofur, ef notaður er sá mælikvarði, sem sam-
svarar kröfum tímans um uppeldislega nýsköpun.
Hið árlega fulltrúaþing Danmarks Lærerforening var
haldið í Árósum í ágúst s.l. og í framhaldi af: því 12. al-
menna danska skólamótið, en Irá þeim samkomum segir
annars staðar í þessu riti.
1 Danmarks Lærerforening eru nú rúmlega 29 þúsund
félagar og stendur starfsemi sambandsins með miklum
blóma.