Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 123
menntamál
117
Aðalfundur Skólastjórafélags Islands.
Aðalfundur Skólastjórafélags fslands \ar haldinn í Mýrarhúsaskóla
a Seltjarnarnesi laugardaginn 19. sept. s.I. Fundurinn var fjölsóttur
°g mikill áhugi ríkjandi. R;edd voru félags- og skólamál. Eftirfarandi
samþykktir voru gerðar:
I- Fundurinn vekur athygli á liinum mikla kennaraskorti í landinu
og bendir á, að mikið vanti enn á, að íslenzkir kennarar séu
launaðir til jafns við starfsbræður þeirra á Norðurlöndum. Fund-
urinn leggur áherzlu á, að aldrei hafi verið meiri nauðsyn cn nú,
að kcnnarastéttin geti óskipt helgað sig kennslu- og uppeldis-
málum allt árið um kring, aukið þekkingu sína og notið sumar-
leyfa í stað þess að eyða þeim í brauðstrit. Fundurinn bendir
á þá miklu hættu, sem af jtví getur stafað fyrir þjóðfélagið, ef
deyfð og stöðnun á að vera ríkjandi í íslenzkum skóla- og fræðslu-
málum, meðan aðrar þjóðir eru sem óðast að efla og styrkja
fræðslumál sín. Bæta þarf aðbúð kennara í skólum og stórhækka
laun þeirra, til þess að þeir geti heilshugar tekið þátt í þróun
og upphyggingu kennslu-, skóla- og uppeldismála, sem nauðsyn-
leg er á liverjum tínta.
2. Fundurinn skorar á menntamálaráðherra og fræðslumálastjórn
að stórauka fjárframlög til námskeiðshalda fyrir kennara og
skólastjóra. Fundurinn leggur áherzlu á, að nauðsynlegt sé að
halda námskeið á hverju ári, yfir sumartímann, fyrir almenna
kennara, sérkennara og skólastjóra, og bendir á að taka beri
héraðsskólana til afnota í þessu skyni. Fundurinn hvetur fræðslu-
málastjórn til þess að skipa nú þegar nefnd til þess að skipuleggja
og annast slík námskeið og væntir jtess, að fyrstu námskeiðin
verði haldin þegar á næsta sumri.
3. Fundurinn telur, að nauðsynlegt sé og tímabært, að Kennara-
skólinn sérmennti sérstaklega kennara fyrir yngri bekkjadeildir
barnaskólanna, þ. e. 7, 8 og 9 ára, og verði þá höfuðáherzla lögð
á sérmenntun lestrarkennara.
Þá ályktar fundurinn, að stefna beri að því, hið allra fyrsta,
að kennarar eldri bekkjadeilda, j). e. 10, II og 12 ára, kenni
aðeins einni bekkjadeild dag hvern, og verði heimanám þá að
mestu fellt niður og að sem svarar einni stund af starfsdegi kcnn-
arans verði varið til félagsstarfa nteð nemendum.