Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 134
128
MENNTAMÁL
Gestir við þingsetningu voru: Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra, Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra, Geir
Hallgrímsson borgarstjóri, Helgi Elíasson fæðslumálastjóri,
Magnús Gíslason námsstjóri, Aðalsteinn Eiríksson fjármála-
eftirlitsmaður skóla, Skiili Þorsteinsson formaður S.Í.B.,
Kristján Thorlacius formaður B.S.R.B., Guðjón B. Bald-
vinsson ritari B.S.R.B., Richard Beck prófessor, Margrét
Beck frú.
Menntamálaráðherra ávarpaði þingið með stuttri ræðu
og færði þinginu eftirfarandi bréf frá menntamálaráðuneyt-
inu, en ríkisstjórnin hafði samþykkt efni þess fyrr um dag-
inn:
Reykjavík, 5. júní 1904.
Það tilkynnist Landssambandi framhaldsskólakennara hér
með, að ríkisstjórnin hefur ákveðið að fallast fyrir sitt leyti
á, að þeir framhaldsskólakennarar, sem voru skipaðir eða
settir í kennarastöðu 1. júní 1952, þegar lög um breytingu
á lögum nr. 36 11. júlí 1911 um forgangsrétt kandidata frá
Háskóla íslands til embætta tóku gildi og kváðu á um
óskert kennsluréttindi þeirra, sem áður höfðu hlotið kenn-
araréttindi, skuli frá 1. júlí 1963 taka laun samkvæmt 18.
launaflokki. Enn fremur mun ráðuneytið í samráði við
Kennaraskóla íslands og kennarasamtökin efna til nám-
skeiða fyrir þá kennara, sem framangreind regla tekur ekki
til, er geri þeim kleift að flytjast í hærri launaflokk.
Gylfi Þ. Gíslason
/Knútur Hallsson.
Til Landssambands framhaldsskólakennara,
Reykjavík.
Á þinginu voru mættir 87 fulltrúar víðs vegar að af land-
inu.