Menntamál - 01.09.1964, Blaðsíða 51
MENNTAMÁL
45
eina skýringuna á því, að .% hlutar lestregra barna eru
drengir.
Nauðsynlegt er við upphaf skólagöngu að finna þau 7 ára
börn, sem þá hafa ekki náð lesþroska, og seinka lestrarnámi
þeirra. Fyrir þessi börn þarf að setja á laggirnar sérstaka
forskólabekki við barnaskólana, en slíkir bekkir hafa verið
starfræktir um árabil í nágrannalöndunum og gefið góða
raun.
Enn eitt þýðingarmikið atriði til að fyrirbyggja lestregðu
er að bæta aðferðir og aðstöðu við lestrarkennsluna í skól-
unum. Byrjunarkennslu í lestri ætti eingöngu að fela kenn-
urum með sérhæfingu á þessu sviði. Um aðferðir og til-
högun kennslunnar skal ekki fjölyrt hér, aðeins bent á það,
að eðlilegast verður að telja, að til grundvallar sé lögð svo-
kölluð ldjóðaaðferð, þar sem íslenzkan er tiltölulega hljóð-
rétt mál, en samhliða ber líka að hagnýta að vissu marki
aðrar aðferðir, svo sem orðaaðferð, stöfunaraðferð og at-
kvæðaaðferð. í svo til öllum nýrri ritum um lestrarkennslu
er varað við notkun einhæfra aðferða. Ríkjandi skoðun í
dag er sti, að aðferðirnar styðji hver aðra á hagkvæman
hátt, enda höfðar það bezt til mismunandi upplags barn-
anna, ef fleiri aðferðir eru notaðar samhliða. Með samteng-
ingu aðferðanna næst líka sá árangur, að börnin fá æfingu
í ýmsu formi, sem er út af fyrir sig fengur.
Lesefni byrjenda þarf að bæta og auka að miklum mun.
Ríkisútgáfa námsbóka þarf nauðsynlega að láta endurskoða
eldri lesbækur sínar og raða upp efni þeirra frá lestækni-
legu sjónarmiði. Enn fremur þarf að gefa út eina eða tvær
samhliða byrjendabækur til viðbótar þeim, sem fyrir eru.
Efni þeirra þyrfti að vera mun meira en tíðkazt hefur, þær
ætti að byggja upp á vísindalegan hátt með takmörkuðum
orðaforða og hægfara, kerfisbundinni þyngingu textans.
hetta var um helztu ráðstafanir, sem tiltækilegar eru til að
fyrirbyggja lestregðu.
Þá er komið að aðgerðum til að ráða bót á sjálfum lestrar-