Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1975, Page 6

Æskan - 01.11.1975, Page 6
ts Gluggagægir fer á kreik JÓLASAGA EFTIR ÁRMANN KR. EINARSSON ekkið þið hann Valla valtara? Nei, það er kannski ckki von, það er svo mikið af börnum í nýja hverfinu. Sum húsin eru enn í byggingu. Þar er hægt að hlaupa inn og út um gluggana að vild. Það þarf lieldur ekki að ganga stig- ana, eins og fullorðna fólkið gerir. Það er hægt að klifra upp vinnupallana utan á húsunum og komast þannig upp á efstu hæðirnar. í liverfinu eru líka alls staðar skúrar, vinnuvélar, staflar af byggingarefni og ótal margt skran, sem of langt yrði upp að telja. En hvergi er skemmti- legra að leika sér, en í hálfbyggðum húsum. Þið getið reitt ykkur á, að nýja hverfið er einskonar undraland og leikparadís krakkanna. í þessu skemmtilega umhverfi átti Valli iieima. Krakk- arnir kölluðu liann valtara, vegna þess hve þungur hann var og feitur. í vaxtarlagi sínu minnti hann helst á fót- bolta. Aumingja Valli var gríðarlega matlystugur, og stóð aldrei upp frá borðinu fyrr en hann stóð á blístri. Þessi afbrigðilegi líkamsvöxtur kvaldi Valla sýknt og heilagt og gróf um sig sem einskonar meinsemd í sálinni. Hann lét ekki neinn vita að hann gekk alltaf með mál- band í vasanum. Oft brá hann því utan um mittið, þegar hann hélt að enginn sæi til. Æ, það var alltaf sama sagan, hann gildnaði stöðugt. Og nú var hann bráðum orðinn tólf ára. Hvernig ætli liann liti út, þegar hann yr®1 tvítugur, já, eða fimmtugur? Hann yrði hroðalegt kjot- fjall með þessu áframhaldi. Vegna vaxtarlags síns varð aumingja Valli að þola að- kast skólafélaga sinna. Þeir höfðu sérstakt yndi af að stríða honum og skaprauna. Valli neyddist til að hætta að leika sér við skólafélaga sína og jafnaldra. Hann stóð oftast einn álengdar og fylgdist með leikjum og ærslum krakkanna. Er nokkuð hræðilegra til, en að vera að ein- hverju leyti afbrigðilegur? Valli hefði getað leikið sér með litlu krökkunum, en það vildi liann ekki. Honum fannst það fyrir neðan virðingu sína. Þeir voru svoddan kjánar, greyin. En það var gaman að hrekkja þá. Valli athugaði ekki, að þar var hann að leika sama leikinn, og eldri krakkarnir gagnvart honum- Kannski var liann með þessu móti að reyna að upphefja sjálfan sig. Svo mikið var víst, að brátt komst það orð á, að Valli valtari væri mesta hrekkjasvínið í hverfinu. Það var liðið að jólum, og jólaleyfið byrjað í skólanum- Aldrei er tíminn jafnlengi að líða og þegar beðið er eftit einhverju. Börnin töldu dagana, og fullorðna fólkið atti mjög annríkt. Krakkarnir gerðu ekki annað, en að flækj- ast fyrir, sérstaklega þeir yngri. Eina ráðið var að drífa þá út og láta þá leika sér. Þið getið rétt ímyndað ykkur, að hverfið sem hann Valli valtari átti heima í, glumdi af hröðu fótataki, hlátra- sköllum og ærslum allan liðlangan daginn. En gamla sagan endurtók sig, Valli var utanveltu við gleðskapinn- Enginn kærði sig um að hafa hann með í leik. Enginn tók raunar eftir honum, nema litlu krakkarnir, sem óttuð- ust hann. Valli valtari var þessa dagana í ákaflega leiðu skapi- Hann vissi ekki hvernig hann átti að drepa tímann. Jóhn voru svo ósköp lengi á leiðinni. Æ, hversvegna gat honum ekki dottið eitthvað verulega smellið í hug? Þessir venju legu leikir krakkanna í hálfbyggðu húsunum voru ekkert 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.