Æskan - 01.11.1975, Blaðsíða 42
GEIMFARINN
FRANK BORMANN
VILL HAFA REGLU
Á HLUTUNUM
Starfsfélagar og kunningjar
Frank Bormanns (47 ára) hafa gef-
ið honum viðurnefnið „Prússinn",
en ( því felst aðeins virðing fyrir
sjálfsaga hans og nákvæmni í starfi.
Árið 1962 var Frank Bormann til-
nefndur einn af níu geimförum
NASA (Geimferðastofnun Banda-
ríkjarina) og þremur árum síðar var
hann skipaður stjórnandi geim-
flaugarinnar „Gemini 7“, sem í des-
ember 1965 setti nýtt heimsmet í
geimflugi. Þremur árum síðar var
hann yfirmaður geimflaugarinnar
„Apollo 8“, fyrsta mannaða geim-
farsins sem fór 10 ferðir umhverfis
tunglið, áður en það sneri aftur til
jarðarinnar. Margir sjónvarpsáhorf-
endur munu sennilega minnast
þess áhrifaríka atriðis, er hann ias
upphátt úr Biblíunni fyrir félaga
sína ( tunglferðinni.
Þegar Bormann hætti störfum hjá
NASA, var hann ráðinn fulltrúi hjá
flugfélaginu Eastern Airlines. Og
hann vakti strax athygli í starfi.
PETUR PAN
í desember 1964 var sérstök hátíðasýning í Scala leikhúsinu í
Lundúnum. Sýnt var leikritið Pétur Pan eftir Sir James Barrie, en
um þær mundir voru liðin sextíu ár frá því að þetta fræga barna-
leikrit var fyrst sýnt í leikhúsi í London. Pétur Pan, „drengurinn sem
aldrei varð fullorðinn", er nú orðin ódauðleg persóna í heimsbók-
menntunum.
Ef undan eru skilin tvö ár í síðustu heimsstyrjöld, hefur Pétur Pan
verið sýndur árlega í London og auk þess hafa bæði áhugamenn
og atvinnuleikarar sýnt leikinn f óteljandi löndum. Að auki hefur ver-
ið búinn til kvikmynd eftir leikritinu, söngleikur hefur verið saminn
um það, og það hefur verið sýnt f sjónvarpi. Segja má því, að það
hafi komið fyrir augu almennings í öllum þeim myndum, sem hugs-
ast geta. Pétur Pan hefur verið þýddur á fjórtán tungumál, og hvar-
vetna hefur hann heillað hug og hjörtu áhorfenda, þar sem leik-
ritið hefur verið sýnt.
Sir James Barrie var sonur vefara, og hann fæddist 9. maí árið
1860 í smáborginni Kirriemuir í Angus f Skotlandi. Staðurinn þar
sem hann fæddist er nú f eigu opinberra yfirvalda. Þar hefur verið
komið upp safni, sem fjöldinn allur af ferðamönnum heimsækir ár-
lega. Þarna í safninu er sérstakt herbergi helgað Pétri Pan, en ekk-
ert annað verk Barries náði sambærilegum vinsældum.
Það er í rauninni furðuleg saga, sem liggur á bak við það hvers
L