Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1975, Page 9

Æskan - 01.11.1975, Page 9
Itwiitihtjariiun fpgnuð.-fceri, friönrljásið heím til }rín, dijpsitu atrenyi huyans hra'ri, helpar vuitir eudurtimri; cr sú áskín min Sorgir sefi. signuð njúla. Guá þér gefi rjleðileya hátíð jóla. M. G Hvað langar þig til að fá, Svenni litli? spurði Glugga- S^gir. Hann hafði ekki heyrt til hans í öllu skvaldrinu °g gleðihrópunum. Mig langar til að fá rauðan brunaliðsbíl, svaraði Svenni. Mamma segist ekki geta keypt hann, en jólasveinninn rnun áreiðanlega koma með bílinn, bætti hann við í lasgri róm. Já, ég hef ýmislegt í pokanum, sagði Gluggagægir drjúg- ur í bragði og klappaði á stóra pokann sinn. Ha—hæ! Það skrjáfar í pokanum, það skrjáfar í pokan- Uru, hrópuðu krakkarnir í kór. Oho—ho! Allar gjafirnar eru pakkaðar inn í gull- og silkipappír, svaraði Gluggagægir brosandi út að eyrum. Hann var jafnvel glaðari en börnin. Megum við fá gjafirnar strax? hrópaði smáfólkið og þfengdi sér nær jólasveininum. O, sussu—nei! í kvöld og næstu kvöld lauma ég gjöfun- Uru inn um gluggann hjá ykkur, þegar þið eruð sofnuð, ansaði Gluggagægir og baðaði út höndunum til frekari áherslu. Já, auðvitað, svaraði Svenni fullorðinslega, og svo eru Sjafirnar geymdar hjá jólatrénu, þangað til jólin byrja r alvörunni. Opnaðu bara pínulitla rifu á pokaopið, og lofaðu okkur að kíkja, báðu nokkrir pollar í bænarrómi. Uss —suss, ég má ekki vera að því, ég þarf að heimsækja Sv° mörg börn í kvöld. K.emur þú þá ekki til okkar? spurði einhver vonsvikinn. Þið getið nú bara nærri, ansaði Gluggagægir ákveðinn og sló á lærið. Ég kem aftur í kvöld, þegar það er orðið aldimmt og þið steinsofnuð. Ég get vakað lengi, sagði minnsti snáðinn í hópnum. Það þýðir ekkert, ég kíki alltaf á gluggana og fylgist með því hvenær börnin sofna. Getur þú sveiað þér upp á það, Gluggagægir, að þú komir aftur? spurði lítill freknóttur hnokki efablandinn á svipinn. Gluggagægir kinkaði ákaft kolli. Jólasveinar eru góðir og svíkja aldrei, sagði Svenni litli ákveðinn. Jæja, nú verð ég að fara, sagði Gluggagægir og stökk af stað. Bless, bless! Bless, bless! Og mundu eftir að koma aftur í kvöld. kölluðu börnin á móti. Já, já, verið þið viss, ég kem aftur. Jólasveinninn gekk nokkra stund um hverfið og vakti mikla kátínu og forvitni, enginn skemmti sér þó betur en hann sjálfur. Gluggagægir gætti þess að gefa sig ekki á tal við full- orðna eða stálpaða krakka. Það var aldrei að vita nema hann þekktist. Ef hann var ávarpaður, tók hann ekki undir og strunsaði sína leið. Nokkrir góndu á eftir honum og hristu höfuðin. Þetta hlaut að vera mállaus jólasveinn, að minnsta kosti var hann eitthvað skrýtinn. Skyndilega nam Gluggagægir staðar, og það var sem ■"iT'ifMY rmiawæ'ffiMíMrjtBiMuwa immi—rfirnirrr iiirmMgaaa——— 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.