Skírnir - 01.12.1918, Blaðsíða 14
284
Byggingamálið
[Skímir
Ekki hefir mér tekist að fá noitt nýtilegt út úr öskunni,.
hvorki taðösku né móösku, en það sannar lítið. Ómögu-
legt er það ekki, að það stafi að eins af vanþekkingu minni.
2. Loft og gólf eru hvervetna gerð úr timbri,
sumstaðar þó úr steinsteypu yfir eldhúsi. Yfir kjallara er
loftið venjulega einfalt, tvöfalt með tróði yfir íbúðarher-
bergjum, og er margvísiegt tróðið: mór, torf, mo3Í, hey, moð.
Þarf ekki að orðlengja það, að mosi, hey og raoð er ófært
til þeirra hluta. Af ýmsum ástæðum (ending, jarðskjálfta-
hættu, músum ogrottum, brunahættu, sóttnæmishættu) tel eg
mjög líklegt, að hyggilegra væri að gera þau úr stein-
steypu, eins og nú er farið að tíðkast í Reykjavík, en aftur
sýnist mér það líklegt, að gerð þeirra mætti að ýmsu
leyti endurbæta og gera þau nokkru ódýrari. Eg skal
þó ekki far'a út í það hér. Þá er það ekki ráðin gáta,
liversu hentugast væri að ganga frá yfirborði steypugólfa,
svo þau yrðu bæfilega hlý og lítt liljóðbær.
3. Þök húsanna eru viðast venjuleg timburþök
með bárujárni. Þó eru torfþök á 3 húsum af 12, að lik-
indum gerð eftir forsögn Jóns Þorlákssonar verkfræðings
í 18. árg. Búnaðarritsins. Reynslan er stutt með þessi
þök, en þau virðast hafa gefist vel, svo ef til vill ættu
hin þökin að leggjast niður’). Undir torfinu mun hafa
verið notaður venjulegur þakpappi og bikaður áður en
tyrft var. Mikið er undir því komið, að pappinn endist
vel, því erfitt er að gera að slíku þaki. Þjóðverjar nota
sérstakt þéttunarefni (Holzcement) á þökin og sérstakar
pappategundir (ef ekki er notaður einskonar pappír).
Sennilega eigum vér eftir að læra ýmislegt í þessu efni.
En hversu sem þessu er farið, þá stafar ætíð nokkur
brunahætta af öllum timburþökum. í Ameríku eru stein-
steypuþök algeng, venjulega flöt, en stundum með venju-
legu risi. Iiór eru þau óreynd, en vert væri að rann-
saka, hvort þau svöruðu kostnaði. Væri mikið unnið, ef
') Þó láta Þjóðverjar, sem mikið hafa notað torfþök með pappa
undir, misjafnlega af þeim.