Skírnir - 01.12.1918, Blaðsíða 75
Skírnir]
Frá Frakklandi, 1916—1917
361!
Frakkland geymir hjartað vel í brjósti sór og ber það ekki
utanklæða. En Frakkland opnaði hjarta sitt einu sinni og lót oss
sjá gullið, sem þar er geymt.
Og svo fórum vór frá Frakklandi einn rigningardag, og skild-"
um þar eftir hjartað hálft. Guðm. Finnbogason þýddi.
VIÐ DÝFLIN.
Ef í lið þitt brestur bráður flótti,
bittu skó þinn, far að öllu rótt!
Hvert skal flýja? Hvað má nokkur ótti?
Hælislaust, og bráðum kornin nótt —
»Til ísiands
eg kemst ekki í kveld«,
sagði Þorsteinn.
Seytján fóru. Sextán fóllu í stríði,
suð’rí Dyflin eltu baua sinn —
afkomst hann, sá eini, er ekki flýði
án þess fyrst að binda skóinn sinn —
»Til íslands
eg kemst ekki í kveld«,
sagði Þorsteinn.
Þó að depri djarfsýn víga-blinda,
drenginn þann mun hugstór kannast við^
sem ei skirrist skóinn sinn að binda
skammarlaust, þó flýi aunað lið —
»Til íslands
eg kemst ekki í kveld«,
sagði Þorsteinn.
Til þess lands er drjúgan veg að vinna
von þín ung sem kjölnum stýrði frá
komið babb í bátinn allra hinna.
Bittu skóinn! Hvað mun liggja á
»Til íslands
eg kemst ekki í kveld«,
sagði Þorsteinn.
Stephan G. Stephansson.