Skírnir - 01.12.1918, Page 55
Skírnir]
Um sendibréf
311
og nota, heldur verða bréfin vísbending um ótal atrið
frá liðna tímanum.
Sumir munu nú segja: Það er efnilegt að eiga það'
á hættu, að öll bréf, sem eg skrifa, verði geymd um ald-
ur og æfi. Eg steinbætti þá að þora að skrifa bréf. En
þeir, sem svona hugsa, hafa víst fæstir aflað sér trygging-
ar fyrir því, að bréf þau, sem þeir hafa þegar skrifað,
verði ekki geymd. Sem betur fer eru þeir þó nokkrir,
sem hafa baldið saman bréfum sinum, og því getur verið
orðið ofseint fyrir þessar hræddu sálir að iðrast eftir dauð-
ann. En þessi ótti ey varla svo almennur, að bann geti
haft mikil áhrif á geymslu sendibréfa. Eg hefi ekki trú
á því, að menn fari að hætta að skrifa bréf þess vegna,
né að margir fari að gera öryggisráðstafanir um, að bréf-
um sínum sé eytt, þvi að flestir eru nú svo gerðir, að
þeim er bæði annara um og eins sárara um umtal í lif-
anda. lífi en eftirmælin. Það hefir oftast verið samtíðar-
innar vegna, að menn hafa skrifað: Brendu bréfið eða
ónýttu þennan miða, því að menn hafa líka reynslu fyrir
því, að hún er í svo mörgum atriðum þröngsýnni og rang-
sýnni í dómum en framtíðin eða aldirnar, sem á eftir
koma. Því verður oft þægilegt þeim, sera bréfin lætur
eftir sig, að geta ákveðið sjálfur, hve nær þau megi lesa.
En fæstir munu bera kvíðboga fyrir því, að eitthvað kunni
að geta komið á prenti um þá eða eftir þá eftir t. d. eina
öld, eoda er það aðgætandi, að ekki getur komið út á
prenti nema litill hluti af þeim bréfum, sem geymd eru,
og þvi siður af þeim, sem ætti að geyma.
En þó að fæst sendibréf, sem fara manna á milli,
verði nokkurn tima prenthæf, né kaflar úr þeim, þá eru
þau mörg þræðir, stærri og smærri, í voð sögunnar Það
verður ekki eingöngu að þeirn litsviftir, ef þá vantar,
heldur verður voðiu víða með losi og glompum, sem aldrei
verður bætt úr, ef þessir þræðir eru ekki varðveittir.
Þetta er mál, sem varðar alþjóð manna, því að hér
getur nærri hver einstaklingur rétt hjálparhönd. Þjóð-
gripir handa Þjóðmenjasafninu eru í fæstra höndum, op-