Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Page 10

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Page 10
108 Járnölrl hin nýja. IÐUNN hefir hún |ró skapað skilyrði, sem óhjákvæmilega lei'ða til niðurbrots á siðgæðishugmyndum fyrri alda, sem mjög eru sprottnar af vanmáttartilfinningu og likam- legum jirældómi. Þaö er mjög náið samband milli líkamlegrar þreytu og þess, er talið hefir verið alment velsæmii. Þess vegna verður þeim, sem ekki eru upp- gefnir af striti, jafnan nokkuð örðugra um rækt þeirra boðorða, en hinum. Vinnan í nýtízku-verksmiðju er t. d. mjög tUbreytingarlaus, en sjaldnast mjög erfið og varir að etins 8 sftundir á dag nema þar, sem stéttasam- tök eru enn á villimenskustigi. Hún veldur geysilegri þreytu í taugum, en líkaminn er að öðru leyti lítið þreyttur. Afleiðingin verður sárt hungur eftir tilbreyt- ingu, hressingu, æsingu, sem rímnakveðskapur og lotu- lengdarþrautir uppgefinna útistritsþræla fyrri tíða veita enga fullnægingu. Heilastörf og kyrlát innivinna krefj- ast því meiri hæfileika til vöndunar framferðisíins frá sjónarimiði fortíðaimanna en útistörf, sem eru svo þurftafrek uim líkamsorku, að engar syndir gagnast fyrir lúa. Þetta verður þó enn betur sýnt, þegar það er aðgætt, hve kvendygðum þykir hafa hrakað, síðan járnöld hin nýja gekk yfir. Yfir því er nú kveinað mjög í öll- um löndum, þar sem mold og málmur eigast við sinn ójafna leik. En á hinum „gömlu, góðu“ heimilum, sem áttu einkenni sín í því, að striti konunnar var aldrei lokið, að hún átti bókstaflega aldrei frjálsa stund, nema meðan hún lá á sæng, virðist skyldan og þrældómurinn hafa stungið öllum nautnaþrám svefnþorn. Á þetta bendir sú staðreynd,, að hjónaskilnaðir hafa aukist í réttu hlutfalli við útbreiðslu ryksugu, fægivéla og ann- ara tækja, er störfum létta af konum. Þetta eirðarleysi utan húss og innan, sem krefur sér

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.