Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Qupperneq 23
iðunn
Slilur um islenzka höfunda.
121
já, hverri tilraun til að kappræða skyn&amlega nokkurt
pólitískt deilumál, ]æir hafa nú kastað tólfunum og
tekið til óyndisúrræðis að reka mannhaturspólitik sína
og blekkingarskriffinsku í nafni Jesú Krists. . . .
„Varið ykkur á afturhaldslygurunum! Varið ykkur á
kramaralýðnum, stjórnmálaspekúlöntunum, trúhræsnur-
unurn, tækifærahýenunum og prælahöldurunum, sem
hafa ofurselt yður og börn yðar hinni glæpsamilegu
spillingu örbirgðarinnar!
„Sjá, ]>eir koma til yðar í sauðarklæðum, en hið
innra eru peir glefsandi vargar.“ (Réttur XV., I.)
Ekki verður með nokkuru móti sagt, að Halldóri fari
úlpan vel. Hún veröur svo Iosaraleg á mönnum, sem
ekki eru fyrir hana vaxnir. Fyllilega réttmætt er að
vara |)jóð sína við ]>eim, sem maður telur skaðsamlega
í stjórnimálalifinu, en tslendingar eru ekki svo margir,
ö-ð ekki imegi takast að láta þá heyra til sín, þótt
ekki sé hrópað svo, að ætla mætti, að það ætti að
hieyrast yfir þvera eyðimörkina í Arabíu.
III.
Islenzkar bókmentir hafa verið, eins og kunnugt er,
nteð ólíkum svip á mismunandi tímum og harla ólíkar
að gæðum. En [>ó hafa nienn jafnan baft meiri og
hiinni hliðsjón af hinum klassisku fyrirmyndum. Pað
eru ekki nema fáeinir áratugir síðan unt er að segja,
að tekið sé að stefna í aðra átt, og næsta öndverða,
hjá meiri háttar rithöfundum íslenzkum. Og það vill
sv° til, að það má drepa fingri niður og benda á
hlettinn, þar ,sem snúið er við.
Mér er minnisstætt samtal, sem ég átti eitt sinn fyrir
aHmörgum árum við ungan mann, sem var að búa sig
Undir að verða rithöfundur. Ég las rit Bernards Shaws