Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Síða 29
(IÐUNN
Liðsauki.
127
þegar þungu vagnarnir hlunkast yfir ójöfnurnar. Pað
er líkast því, að verið sé að renna akkerisfesti inn í
eyrun á manni. Á götunum, þar sem mönnum er ætlað
■að ganga, renna bílar mjúkt og hljóðlaust um fágað
malbikið, eins og stássmey yfir gljáandi danzgólf, þar
eru ískrauthýsi og skemtigarðar, kirkjur, troðfullar af
guðsorði og góðum borgurum, sólskin, speglar ogskart-
gripir, sem kosta meira en heil hjágata, rafmagnsaug-
lýsingar og stór líkön af þeim, sem hafa fundið upp
hjágöturnar og grætt of fjár á þeim. Þeir eiga stóru
klettana og alt, sem þar er búið til, og börnin þeirra
þurfa ekki að fara inn á neinar hjágötur, heldur geta
setið á gildastéttunuim og baðað sig utan og innian í
sólskini breiðra stræta og þresiktra þrúgna.
Uppfundningamenn hjágatnanna hafa líka látið reisrf
faliegu kirkjurnar og keypt sér i þær presta, ssm geta
talað. Prestarnir segja góðu borgurunum, að djöfullinn
ðafi fundið upp hjágöturnar, og ef þeir haldi sér ekki
á mottunni, verðd þeir reknir þangað. Á kvöldin fara
kletlaeigendurnir, konur þeirra og börn í leikhúsin og
á skemitistaðina og eyða sem svarar nokkrum tonnum
-af hjágatnagrjóti og drekka niðursoðið sólskin fyrir
aokkra lítra af blóði klettabúanna. Eftir hádegi daginn
'Cftir fara þeir á fætur og aka í 'fallegu bílunum sinurn
t*m gljáandi malbikið. Feðurnir ganga inn í kauphöllina
°g láta skrifa þar nokkra tölustiafi, og inn í ráðhúsið
<5g þinghúsið og segja þar nokkur orð. En þetta eru
galdrastafir og töfraorð, því óðar spretta upp nýjar
hjágötur og nýtt blóði í istaðinn fyrir það, sem eytt var
* gærkveldi á skemtistöðunum.. Börn ]>eirra sitja á
gildastéttunum og ræða um tilgang lífsins; kvikmyndir
°g hneykslissögur, og konur þeirra kaupa nauðþurftir
sínar í ‘búðunum, sem auglýsa imeð rafkrafti á kvöld-