Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Síða 56
154
Gróðinn af nýlendunum.
iðunn
nauðungarvinnu. Þrælaveiðar Evrópumanna í Asíu og
Afríku á 17. og 18. öld urðu hvorttveggja í s.enn: upp-
liaf öreigastéttarinnar í nýlendunum og upjihaf ný'
lendu-auðæfa Evrópu. Þrælasalan var afnumin á 19.
öld — að forminu til. En sú félagslega ringulreið, sem
præiahaldið olli meðal nýlenduþjóðanna, hvarf ekki
,meö afnámi þess. Plantekru-verkalýðuriinn nú á dögun)
er að grunnstofni til sögulegur arfur frá tímum þræla-
haldsinsu Og þetta framferði — að afla sér vinnukrafts
fyrir beina þvingun, er engan veginn úr sögunnii enn,
þrátt fyrir afnám þrælahaldsins að nafninu til. Svo aö
segja um allan nýlenduheiminn á sér stað þann dag í
dag víðfeðmt og jafnvel lögbundið kerfi siíkrar nauð-
ungarvinnu.
í Evrópu fara litlar opinberar fregnir af þessu ný-
tízku þrælahaldi. Alþjóðlega vinnumálaskrifstofan í
Genf gaf út í fyrra opinbera skýrslu um þessa áþjánar-
vinnu. Úr ýms-um áttum hefir skýrsla þessi mætt þeirri
gagnrýni, að hún gefi alt of bjarta rnynd af ástandinu
eins og það er nú. Skýrslan var í öllum aðalatriðum
bygð á upplýsingum frá nýlendustjórum stórveldanna.
Það er ekki mikið vandaverk að afhjúpa veilur þessar-
ar skýrslu, eftir frásögnum blaða og ýmsum fregnuni
frá nýlendunum. Þrátt fyrir þetta verður að telja
skýrslu þessa hið furðulegasta plagg, sem birtist heim-
inum á árinu sem leið (1929).
Áþjánarvinnan er sérstaklega illkynjuö meðal þjóð-
flokka á frumrænu stigi, þar sem erfitt hefir reynst að
ryðja á brott hinum gömlu félagsháttum og þjóðar-
venjum og með því afla sér ódýrs vinnukrafts. Þetta
á sér stað i Kongo, Kenya, Kamerun, nýlendum Frakka
í Mið-Afríku og nýlendum Portugala.
Opinber skýrsla um nauðungarvinniuna í irónsNUiU