Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Page 57

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Page 57
iðunn Gróðinn af nýlendunum. 155 nýLendum i Miö-Alríku dregur á eftirtektarverðan hátt fram í dagsljósið leyndardóminn um hið lága launa- stig, sem svartir verkamenn í Afríku standa á. Við járnbrautarlagninigu í Kamerun hafa unnið 6400 svert- ingjar, sem er smalað til vinnunnar með valdi. Dag- laun þeirra er 2,80 frankar eða 40 aurar. Löggjöf Frakka í Kamerun leyfir slíkan liðsafnað með valdi, einnig til atvinnufyrirtækja einstakra -manna. Á öðrum stað í franskri Mið-Afríku var fyrir nokkrum árum byrjað að leggja járnbraut mikla, og svo að segja ein- göngu notaður útboðinn vinnukraftur. Við petta fyrir- taeki vinna stöðugt milli 10 og 15 púsundir negraþræla. Daglaunin, sem nýlendustjórnin franska ákveður eftir eigin geðþótta, eru 1,50 frankar eða nálægt 20 aurum, Franski rithöfundurinn Albert Londres, sem hér á Norðurlöndum er jrektur af bók sinni: „Leiðin tiil Bue- nos Aires“, hefir nýlega í bók um franska nýlendu- stjórn gefið allglögga lýsingu á pessu járnbrautarfyrin- tæki meðal annars: Þegar byrja átti á járnbrautinni, var gripið til pess að bjóða út verkafólki með valdi, og 8000 svertingjum var smalað saman. Eftir skamman titna voru ekki nema 1700 eftir. Hinir voru dauðir úr hungri og lungnasjúkdómum. 1 stað þeirra varð að útvega nýja. En nú flýði fólkið úr heilurn þorpum og leitaði lengra inn í landið eða til belgisku nýlendunnar Kongo. Þeir einir, sem á einhvern hátt voru lasburða, urðu eftir. Af nýju verkamönnunum dó 65«/o. „Það verður að fórna 6—8000 mönnum í viðbót, eða hætta við pessa járnbraut," skrifaði belgiski konsúliinn á staðnum. En sú fórn hefir reynst alls ónóg. Frarn að Þessu eru 17 000 verkamenn dauðir, og enn eru eitir 300 kílómetrar af járnbrautinni. — í frönsku nýlendunni Indo-Kina hefir þessi nauðung-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.