Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Page 58

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Page 58
156 Gróðinn af nýlendunum. iðunn arvinna leitt til víðgreindra uppreisnarhreyfinga. Frá nyrzta landshlutanum, Tonkin, var verkafólki boðið út til vinnu á plantekrunum' í siuðlægari héruðum eða til eyjanna í Kyrrahafi. Fyrir hér um bil tveim ánum brauzt hatrið gegn þessari vinnuþvingun út með þeim hætti, að höfuðsmalinn, franskur maður að nafni Bazin, var tekinn og drepinn. 76 innlendir „byltingarmenn" voru dæmdir til strangrar refsivinnu fyrir þetta morð. — í febrúar í fyrra (1930) varð aftur uppreisn í Tonkin. Og að þessu sinni birtist nýtt tákn tímanna i frelsisbaráttu Indo-Kina. Herliðið í Yen-Bay í Tonkin tók virkan þátt í uppreisninni með þjóðinni, en móti frönskum yfi'r- ráðum. Hér í Evrópu er því alment trúað, að nú á dögurn þekkist ekki lengur það villimanna-atferli, s<em áður fyrri tíðkaðist gagnvart nýlenduþjóðum. Vér gerðunt rétt í að losa oss við þess konar mannúðarhugmyndir sem allra fyrst. Þær eru blekking ein. Það er enn fremur almenn skoðun, að hinn ödýri vinnukraftur í nýlendunuim, sem er meginstoðin undir nýlendugróðanum, eigi sér rætur í staðbundnum nátt- úruskilyrðum og þjóðháttum. Vér verðum að kasta einnig þessari skoðun fyrir borð. Evrópumenn hafa sjálfir skapað þessi skilyrði, og þeir gerðu það oftast með báli og brandi. Leyndardómurinn um nýlendugróðann og þau geysi- legu auðæfi, sem Evrópumenn hafa safnað þar ytra, birtist nú fyrir augum vorum í nöktum einfaldleik. Ný' lendu-auðæfin eru ávöxtur aldalangrar kúgunar og hryllilegra ofbeldisverka. Það drýpur blóð af hverjum peningi þess arðs, sem streymir árlega til Evrópu frá nýlendunum.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.