Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Síða 62
IÐUNISE
Um Kristofer Uppdal.
Kristofer Uppdal er einn af merkustu rithöfundum Norð-
manna. Hann fæddist árið 1878. Faðir hans var bóndi í
Norður-Þrændalögum og síðan ökumaður í smábæ einum
norður par. Uppdal kyntist snemma lífi verkamanna þeirra,.
sem vinna við vegagerð, járnbrautarlagningar, námagröft.
og fleiri þess háttar störf. Eru þeir lítt við einn stað
bundnir, en flakka sveit úr sveit og grípa grísinn þar sem
hann gefst. Norðmenn kalla slíka verkamenn „rallara".
Þykja rallararnir eyðslusamir og hneigðir til óreglu og
jafnvel óeirða, en um leið hafa þeir orð á sér fyrir hjálp-
semi og samheldni — og heiður þykir þeim að vinna vel
og rösklega.
Merkasta verk Kristofers Uppdals fjallar mjög um lif
þessara manna. Er það tíu bindi og heitir „Dansen gjenom
skuggeheimen". Segir þar nokkuð frá þeim breytingum í
þjóðlífi og atvinnuháttum Norðmanna, er verða þess vald-
andi, að bændasynirnir fara úr sveitunum og gerast rallar-
ar. Fylgir svo höfundur þeim, unz þeir eru orðnir saman-
þjappaður stjórnmálaflokkur og stórveldi í landinu. Hann
sýnir oss sem sé för rótlausra, en þrótti þrunginna sveita-
barna um skuggadal æstra, tryldra og frumrænna ástríðna
og náttúruafla út á sólvelli meðvitundarinnar um eigin inátt
og gildi og skipulagsbundinnar starfsemi fyrir framtíðar-
heill allrar alþýðu. Dregur hann ekki fjöður yfir bresti og
gönuskeið, hvorki verkamannanna sem einstaklinga né sem
starfandi forsprakka í baráttunni, en alls staðar kemur þó
fram víðsýni og skilningur á orsökum og afleiðingum hvers
og eins og djörf, en dýrkeypt trú á möguleika og mátt
alþýðunnar til aukins þroska.
Mannlýsingar Uppdals eru oft snildarlegar og stórhríf-
andi. Er stundum við þær eitthvað ferlegt, þar eð Uppdal
hikar oft og tíðum ekki við að svifta menningargrímunni af
andlitunum, svo að skín í loðnar dýrbíts-ásjónur og tindr-
andi, blóðþyrst, en heillandi augu.