Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1931, Side 87
■KMJNN
Ferðaminningar.
185
Jeik hans, fyrir ;sitt leyti eins og þjóðleikhús vort fer
með Landsbókasafnshúsið við Hverfisgötu.
Líklega verða |)að því einna helzt byggingar j)ær,
sem kendar eru við Kristján konung IV., sem gleðja
augu mín á Hafnarslóð, og J)ó eru flestar |)eirra ekki
annað en hollenzkar stælingar. En Jiær fara bænum
Prýðilega, og enga Jæirra vildi ég missa.
Um alt þetta mætti margt segja. En svo er enn |)á
eitt. Danir kalla Kaupmannahöfn stundum det lille
Köbenluwn, og ])ó er bærinn miklu stærri en við væri
að búast með jafnfámennri ])jóö og auk ])ess langmest-
nr bær á Norðurlöndum. Hvað kemur þá til, eða hvort
snundi nokkur Svíi láta sér til hugar koma að tala um
hann litla Stokkhólm?
Maður þarf ekki að vera lengi í Höfn til þess, að
linna til nálægðar Berlínar og þeirra áhrifa, sem hún,
París og London hafa á hugi ýmsra helztu manna í
Uanmörku. Danir erru auðug ])jóð og ferðast mikið.
Erlend áhrif frá stærri þjóðum flæða látlaust yfir þjóð-
ina. Detta er að ýmsu leyti mjög æskilegt, en það
heimtar bæði hæfilega andspyrnu og metnað fyrir því,
sem er innlent og þjóðlegt. Danir eru vafalaust tryggir
við surnt það, sem þeir hafa þegið að erfðum frá feðr-
l,m sínum og mæðrum, en þá virðist hafa skort skap-
andi frumlega menning til þess að reyna að setja sér-
hennilegan s.vip á höfuðborg ])eirra, svip, sem svari til
euðlegðiar og viljaþreks dönsku þjóðarinnar.
Þió þykir mér miklu vænna um Kaupmannahöfn en
StokkhóLm, og miklu fremur mundi ég kjósa að eiga
Eeima í Höfn. Hvers vegna? Af ])eirri einföldu ástæðu,
að i mínum augum er Höfn íslenzkasti bær, sem ég
hefi kynst. Ég veit svo sem vel, að þetta kann að virð-
ast undarlegt, en svo er það nú samt. Líklega áræðir