Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Page 14
172
Stephan G. Stephansson.
iðunn
Viss að bera í sínum sjóði
Sæmd og auðlegð frá hans blóði,
Tómum köllum kok-hreystinnar
Kaupa nafnbót iýðhyilinnar:
Stærstan huga þurfti þá \
Að þora að sitja hjá.
Vísa þessi og önnur kvæði, sem birtust úr »Vígslóða«,
vöktu talsverðan úlfaþyt meðal þeirra, er Stephan kall-
aði »kokhrausta«. En Stephan lét svipuna ganga um
bak þeirra vægðarlaust og stóð aleinn uppi sem and-
mælandi styrjaldarandans, sem hafði gagntekið Jtjóðina.
Veigamesta kvæðið í þessum bálki er »Vopnahlé«.
Það er yfirgripsmikil gagnrýni á jtjóðskipulagi nú-
tímans, starfsháttum þess og meinsemdum, sem leiddu
tibhins sorglega hildarleiks.
í þessari stuttu grein er engan veginn unt að gefa
yfirlit um kvæðagerð Stephans G. Stephanssonar. Til
þess er hún of yfirgripsmikil og margþætt. Hann
,*hefir flokkað kvæði sín nokkuð eftir efni þeirra, og
skal ég hér nefna heiti flokkanna, og eru þeir í
fyrstu þremur bindunum þessir:
I. Gripið úr lausu lofti.
II. Út í veður og vind.
III. Yfir minnum lands og lýða.
IV. Heima að hitta.
V. Út á víðavangi.
VI. Úr sögnurn og sögum.
VII. Dreymt eftir daglátum.
VIII. Á rúi og strúi.
a) Á ferð og flugi.
b) Aftaka óeirðarmannsins.
c) Flutningurinn í nýja húsið.
d) Diakonissa.