Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 30
188
Svona á ekki að skrifa ritdóma.
IÐUNN
og þangað í bænum, og ekki að eins rússneska esper-
antista, heldur einnig málfélaga frá Svíþjóð, Austur-
ríki, Sviss, Frakklandi, Spáni, Englandi og Bandaríkj-
um Ameríku. Eitt kvöld hittumst við frá sex löndum
i aðal-menningargarðinum og ræddumst við eins og
aldavinir vestan úr Suðursveit.
Rússnesku esperantistarnir sýndu mér dæmafáa vel-
vild: útveguðu mér ókeypis dvalarleyfi, fóru með
mig kynnisfarir í verksmiðjur og skóla, óku með mig
á hvíldarheimili, fylgdu mér á söfn og þannig margt
fleira. Einn sótti mig á rithöfundaþingið, gaf mér kost
á að flytja þar ræðu, lánaði mér óbeðið peninga,
fylgdi mér í bókabúðir, bað mig að rita grein um ís-
lenzkar bókmentir, fyrir hverja hann útvegaði mér
200 rúblna betalning, hver hefði enzt mér til fortær-
ingar í heilan mánuð í þeim praktuga stað. Gerið þið
betur, sem þykist vera tengdir mér hinum heilögu
böndum þjóðernis og ættjarðarástar! Sumir heim-
sóttu mig á hótelið og ræddu við mig langt fram á
nætur, hvar af ég hlaut margslags uppbyggingu og
andlega styrkingu. Auk þessa var einn mér til að-
stoðar alla daga, oft frá klukkan niu og tíu á morgn-
ana og þangað til síðasti sporvagninn ók heim að
afhallandi miðnætti. í stuttu máli: Ég var oftast nær
umkringdur af verulega elskulegum vinum (sem þó,
með leyfi lesandans, létu mig alveg sjálfráðan allra
minna ferða), svo að það var mér sönn þjáning að
hugsa til þess að þurfa að fara þaðan þarna nokkurn
tíma aftur. Og lesandinn skyldi varast að reyna að
upphefja sjálfan sig með þeirri trú, að þetta hafi ver-
ið einhverjar óuppdregnar mannætur, eins og bolse-
víkar líta út gegnum sýningarglugga Morgunblaðsins.
Þetta voru hámentaðir kennarar, bókaverðir, læknar,