Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Síða 60
218
Nútíðarbókmentir Bandaríkjamanna.
IÐUNN
auðmönnum, sem með fullkomnu samvizkuleysi nota
sér líf og krafta verkamannanna í hinum miklu slátur-
húsum Chicagoborgar — og gagnvart neytendum fæð-
unnar, sem þeir fram-
leiða, eiga ekki nokk-
urn minsta snefil
af ábyrgðartilfinningu.
Veikar skepnur, rott-
ur, lík og hvað ann-
að er alt jafn-gott, af
því að jiað gefur fé í
budduna, þegar það
er selt sem niðursoðið
kjöt af úrvalsgripum
utan af hinum gras-
góðu sléttum. í Kola
konungi tekur Sinclair
fyrir kolanámueigend-
urna, sýnir, hvernig
þeir á sama hátt, með
lögin og blöðin sín megin, hneppa í fjötra skorts og
þrældóms sál og líkama verkamanna sinna og selja
vöruna með það eitt fyrir augum að græða sem mest,
en ekki hitt, að gagna meðbræðrum sínum eða jijóð-
félaginu í heild sinni. Þá er Olia, þar sem ekki er
að eins sýnt þetta sama, heldur líka bent á, hve hóf-
laus rániðja er fólgin í starfsemi olíuhringanna, hve
ábyrgðarlaust þeir ausa af gæðum náttúrunnar án
augnabliks umhugsunar um komandi tíma. í þessari
sögu eru lýsingar á lífi hinna voldugu auðmanna,
lýsingar, sem sýna berlega hið gegndarlausa og til-
gangslausa óhóf, sýna, hve líf þeirra er gildislaust og
gersamlega án markmiðs. Eru í þessum lýsingum fólgn-