Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Page 64
222
Nútíðarbókmentir Bandarikjamanna.
IÐUNN
andi hátt en hjá Upton Sinclair, því þarna er mið-
depill lýsingarinnar maður, sem sýndur er af sann-
færandi nákvæmni og óviðjafnanlegri getspeki, og alt
hið ytra eins og fær
sérstæðan veruleika-
blæ vegna sambands
þess við hið ægilega
og stórbrotna athafna-
og ástríðulíf þessa
manns. Nafn hans er
Frank Cowperwood.
Hann er fjármálamað-
ur í stórum stíl, og
menn og konur eru í
hans augum að eins
sjálfsögð hjálparmeð-
ul til aukinnar lífs-
nautnar — til fullnæg-
ingar hinum óseðjandi
fýsnum hans, ágirnd,
valdafíkn og kynhvöt. Hann er persónugerfingur
mannlegrar fiknar, samfara stórfeldum vitsmunum,
óbilandi kjarki og ferlegum þrótti. Ekkert bindur hann.
Hann er óháður öllum gömlum kenningum um mann-
úð og siðferði. Alt verður að lúta í lægra haldi fyrir
fíkn hans i að eiga og njóta. Hefir Dreiser kannske
sýnt þarna gleggra en nokkru sinni síðar hin blindu
öfl i kapphlaupi Iífsins og tilverunnar, öfl, sem
árangurslaust sé að reyna að ná taumhaldi á eða færa
í fangastakk nokkurra ytri forma.
í sögunni The Genius lýsir Dreiser aðallega manni,
sem er andstæða við Frank Cowpervood. Hinar ýmsu
ástríður Cowpervoods vinna saman að ákveðnu marki,
Theodore Dreiser.