Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 11

Kirkjuritið - 01.04.1949, Side 11
HVÍTASUNNURÆÐA 89 skýra sálarsjón þína og hann lætur sína himnesku náðar- °g sannleiksgeisla ljóma í hjarta þínu, þar sem áður var myrkur og dimma. Þegar þú hryggist af syndum þínum og grastur þær fyrir Guði, þegar þú þráir Guðs náð af öllu hjarta, en finnur þig hennar þó ómaklegan, þegar trúarsjón þín sér faðm friðþægjarans útbreiddan móti þér eins og hið eina athvarf og hæli, svo að þitt hrellda hjarta huggast og friðast, Þá er það hinn himneski huggari, hinn himneski friðar-andi, sem er kominn til þín með sína guðlegu friðargjöf, sem æðri er °Hum skilningi, þá er það hann, sem huggar og endurnærir salu þína og sameinar þig frelsara þínum með sannri og lifandi trú. Og þegar þú þá finnur í hjarta þínu, að þú ert frið- þsegður við Guð, svo að þú með fögnuði getur tileinkað þér fluðs náð og friðþægingu frelsara þíns, þá er það heilagur andi, sem ber vitni þínum anda, að þú sért Guðs bam. Þegar Þú ennframar finnur þig Guði sameinaðan í trú og elsku: Þegar þú elskar Guð af öllu hjarta og allri sálu fyrir allt þlð góða, er hann veitir þér, fyrir allar náðargjafir hans; þegar þú elskar mennina, af því að þeir, eins og þú, eru börn þlns himneska föður og bræður þínir í Jesú Kristi; þegar þú elskar allt hið góða, af því að það er gott og Guði þóknan- legt, þá hefir hinn himneski kærleiksandi kveikt í sálu þinni úlð guðdómlega kærleiks-líf, sem er hið hulda líf með Kristi 1 Guði, því að Guð er eilífur kærleikur, — þá endurnýjast þú í réttlæti og heilagleika, í sannleika og kærleika, eftir þess mynd, sem þig hefir skapað. Heilagur andi kemur því til vor til að færa oss þessar himnesku ástgjafir. Vor himneski faðir sendir oss hann í Jesú nafni, svo að vér verðum Guðs börn og erfingjar eilífs Hfs, og frelsarinn sendir oss hann frá föðurnum, svo að vér meðtökum af hans nægtum náð á náð ofan og öðlumst að lokum hið eilífa lífið. — En hvenær kemur heilagur andi? Hann kemur, þegar Guð sér að hjörtu vor eru hæfileg til að meðtaka hann, þegar þau þarfnast mest huggunar, styrk- leika og endurnæringar. En hann kemur ekki, meðan þau eru full af áhyggjum og sorgum þessa lífs, eða meðan þau stjórnast af syndsamlegum og óhreinum gimdum, sem ætíð

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.