Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 33

Kirkjuritið - 01.04.1949, Page 33
SÁLUHJÁLPARSTARF í SVÍÞJÓÐ 111 helvíti. Prestur fer að tauta eitthvað um það, sem honum hafði verið kennt, að Guð sé góður og líklegur til að geta fyrirgefið syndir. En karlinn slær hann alveg út af laginu. Er hann ekki um neitt vissari en að Guð sé fyrir löngu ^PPgefinn á að fyrirgefa sér, og sé nú búinn að loka að íullu dyrum náðar sinnar. Verður nýguðfræðingurinn harna strax að aumingja í sáluhjálparstarfinu og veit ekki S1tt rjúkandi ráð. En í þessum vandræðum ber að garði >_>trúaða“ konu, sem undir eins kann miklu snjallari tök a sálusorginni en prestur. Sannar hún hinum deyjandi manni umsvifalaust með guðsorði, að engu skipti hvaða hannsettur þrjótur hann hafi verið, ef hann aðeins trúi rett, og deyr öldungurinn sáluhjálplegum dauða. Nú dett- Ur Prestinum það ekki í hug, sem óneitanlega lá þó bein- ast við, að gera sér þegar grein fyrir þvi, að það var ein- mitt helvítisprédikunin, sem vakið hafði upp ógnirnar í Sal mannsins, sem svo meistaralega var frelsaður með hókstaf, og að hægt væri að koma í veg fyrir slíka ör- vmglun með skynsamlegri trúarboðun. Heldur verður hann svo sleginn af þessari guðfræði, að hann umvendist °g gerist vakningaprédikari og kemst að þeirri niðurstöðu, ah allt sé ónýtt, er hann áður hugði um gæzku Guðs. Dettur hann niður á sama andlegt ,,plan“ og þetta fólk, Sem hann átti að vera leiðtogi fyrir. Verður hann svo l^ngt leiddur í guðsóttanum, að hann skammast sín fyrir að ganga í sæmilegum fötum, og prófastsdóttirin, sem lít- Ur hann hýru auga, hættir að nota brjóstnælu móður sinnar, með þvi að það er of syndsamlegt. Nú gerist hann meinlætasamur umvandari og vakning- m er í fullum gangi. Allt logar í trúhræsni og siðavendni. ■^n einn kemur öðrum meiri. Þegar hann er í öngum sín- Um út af syndum sjálfs sín og sóknarbarna sinna, sem ann reynir rösklega að vinna bug á, kemur nágranna- Pfestur hans einn og færir honum heim sanninn um það, að betrunin sé vonlaust verk. Og hún er annað, sem er enn háskalegra: Hún er freisting djöfulsins, aðeins tilraun

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.