Kirkjuritið - 01.04.1971, Síða 66
sögunni. Þetta eru viðkvœm atriði, en þó hef-
ur höfundur ekki treyst sér til að sleppa þeim
alveg. Það sýnir, að hann vill vera orðinu trúr.
14. og 15. kafli eru um sakramentin, en só
16. um bœnina. Þessir kaflar rœða um guð-
rœknina af mikilli alvöru, enda er ekki van-
þörf ó, að fermingarbörn séu leidd inn í lífs-
samfélagið við Drottin. 17. kaflinn snertir meira
ytra starf kirkjunnar og kristileg félög. Það er
einnig sjólfsagður liður í uppeldinu. Kristni-
boðsins er getið sérstaklega ó bls. 94 við hlið-
ina ó díakoníu (vandrœðaorð).
En er þó ekkert út ó bókina að setja? Jú,
það hefur einnig verið drepið ó það, en einkum
er mér illa við stœrðina, — þegar svo bœtist
við önnur bók, vinnubók. Bókakröfur við nóm
eru orðnar miklar í seinni tíð. Nýjatestamentið,
Sólmabókin, Frœðin minni eftir Lúter œttu að
nœgja, einkum með hliðsjón af Biblíusögum.
Er ekki hœtt við, að Ritningin verði útundan
við svona mikinn lestur? Það ó að lesa mikið
í Nýjatestamentinu undir fermingu. Vinnubók
þarf ekki að vera annað en stílabók. Þar skal
rita hjó sér það, sem haft er undir nœsta tíma,
og auk þess mó gera þar teikningar, svara
spurningum og gera ýmsar athugasemdir. En
hitt er ekki að lasta, sem vel er gert með
stœrri bókum og vel gerðum eins og vinnu-
bókinni, sem fylgir þessari bók.
Fermingartímarnir þurfa að vera miklu
fleiri en almennt er. Hallgrímsdeild mun hafa
samþykkt 30 tíma. Þó þarf það ekki að vera,
en hitt er sleifarlag að lóta örfóa tíma nœgja.
Auðvitað leyfa ekki aðstœður alltaf svo langa
kennslu, en þó mó oft bœta það upp með
heimalœrdómi, sem prestur gengur eftir. Það
er augljóst mól, að svona langt kver krefst
langs tíma. Það er ekki sízt þess vegna, að
ég set út ó stœrðina. — Það var mikið verk
að lœra Helgakver utan bókar, 100 þéttprent-
aðar síður ón mynda. Ég mœli ekki með þeirri
aðferð. En mikið mœtti segja um kosti Helga-
kvers, fyrst það, að frœðin eru prentuð fremst,
annað það, að frœðslunni er skipt milli trú-
frœði og siðfrœði, þriðja það, að orðalagið
er víða bœði hnitmiðað og stutt. En sízt af
öllu mó gleyma því, að Helgakver er nóma
að ritningargreinum. Só, sem kann Helgakver,
er ekki illa að sér í Biblíunni, og það er aðal-
atriðið.
Magnús Runólfsson.
Biðjum fyrir söfnuðum vorum
Almáttugi og eilífi Guð, sem öllu stýrir
á himni og jörðu, heyr af mildi þinni
auðmjúkar hænir þjóna þinna, og veit
þessu prestakalli allt það, sem þarft er
til andlegrar velferðar. Styrk þú hina
trúuðu og fjölga þeim. Vitja hinna sjúkti
og létt þjáningar. Vek þá andvaralausu.
Reis þá föllnu. Snú þeim forhertu og
milda þá. Veit viðreisn hinum iðrandi.
Vik hverri hindrun úr vegi sannleika
þíns, og gjör oss öll eitt i hjarta og
huga í hjörð heilagrar kirkju þinnar,
nafni þínu til vegsemdar og dýrðar, fyr-
ir fesúrm Krist. Drottin vorn.
Biðjum fyrir biskupi vorum
og prestum
Almáttugi Guð, sem leiðir kirkju þina
i Heilögum Anda og þjónar henni og
stýrir með biskupum, prestum og djákn-
um. Eg kalla í auðmýkt á hlessun þína
yfir hiskup vorn, ... og sóknarprest
vorn, . . . svo að þeir hljóti fyrirgefning
synda sinna og íklæðist réttlæti ásamt
öllum öðrum þjónum þínum og hirðum
og fái borið fram heilagt orð þitt og
sakramenti með þeim hætti, að margir
fari að elska þig og þjóna þér. Fyrir
Jesúm Krist, Drottin vorn.
Biðjum fyrir kristniboði
og kristniboðum
Ó, Guð, vor himneski Faðir, sem birtir
kærleika þinn með því að senda Soniþinn
eingetinn til þessarar veraldar, svo að all-
ir mættu lifa fyrir hann: Hell Anda
þínum yfir kirkju þína, svo að hún geti
breytt eftir boði hans, að predika fagn-
aðarerindið allri skepnu. Vér sárbænum
þig, send verkamenn fram til uppskeru
þinnar. Ver þá öllum hættum og freist-
ingum, og flýt þeirri stundu, er heið-
ingjarnir verða komnir inn með tölu og
allur ísrael mun frelsaður verða. Fyrir
hinn sama Son þinn, Jesúm Krist,
Drottin vorn.
A Book of Prayers, London, 1963.
64