Kirkjuritið - 01.10.1971, Side 30

Kirkjuritið - 01.10.1971, Side 30
hvergi birtist á skýrari og áhrifarík- ari hátt en í mynd Jesú Krists. Ég fullyrði þetta m. a. með stuðningi af þeirri staðreynd, að foreldrar vilja fúslega senda börn sín í sunnudaga- skóla, i sumarbúðir kirkjunnar og eru þakklátir fyrir allt, sem kirkjan gerir til þess að beina hollum trúaráhrifum að hugum barnanna. Jafnvel þeir foreldrar, sem sjálfir eru veilir í trúnni og rœkja hana lítt, hafa þá ábyrgð- arvitund gagnvart börnum sínum og svo heilbrigt hugboð eða eðlisávís- un, að þeir vilja ekki láta þau fara á mis við kristin trúaráhrif og þiggja með þökkum alla aðstoð í því efni. Þeir gera sér Ijóst eða hafa hugboð um það, að hér er um veganesti að rœða, sem barnið má ekki missa. Þeir vilja a. m. k. ekki taka á sig þá ábyrgð, að láta þau fara á mis við það. Hlutur foreldra En hitt þyrftu foreldrar að gera sér betur Ijóst og almennar en raun er á, að sjálfir hafa þeir lykilinn að trúarlegri mótun barnsins. Þrátt fyrir það þótt skólinn sé orðinn megin- þáttur í lífi barnsins á löngu skeiði, þá er það alls kostar á vegum for- eldra sinna og heimilis fyrstu árin, og þau ár eru mikilvœgust um mótun af öllum œviárum. Lengst og bezt býr að fyrstu gerð. í annan stað standa bœði skóli og kirkja höllum fœti í þessu, nema foreldrar séu að baki, sem taka trú sína alvarlega. Barn, sem aldrei kynnist bœn heima hjá sér, barn, sem verður þess aldrei vart, að Guðs orð sé um hönd haft 28 á heimilinu, barn, sem aldrei ^ pabba og mömmu með sér í kirkju, ekki einu sinni þegar verið er að bua það til fermingar, fer út í lífið me^ veika trúarlega fótfestu, þó að góðnr kennari, góður prestur og söfnuður< góðir félagar geti allt um það orðið til ómetanlegrar hjálpar og blessun<3r' Köllun allra En allt ber að sama brunni um þ0^1 að grunnur kirkju vorrar sem þ]°^' kirkju er hugur fólksins í landinu. 09 óvirkur hugur, aðgerðalaust vinsernð" arþel eða tal kemur að litlum notum- Hér þarf hver móðir að skilja köMun sína og átta sig á, hvað í húfi er' Hér þarf hver faðir að finna til n’ byrgðar sinnar. Og finni kennarin11 og presturinn alúð, alvöru og e'n’ dreginn vilja til stuðnings hjá f°r’ eldrum, þá verður þeirra hlutur ann’ ar, auðveldari og ávaxtameiri. 09 þá vaka ráðamenn betur og ger° betur, þeir, sem eiga yfir skóla sjá og aðra ríkisrekna áhrifavald0, svo sem hljóðvarp og sjónvarp. Það mœtti margt fleira um þe^° rœða og einnig frá fleiri hliðum- Lengi hefur það verið áberandi °9 áhyggjuefni, hve lítið kemur hér af góðu, kristnu lesefni við alþý^u’ hœfi. Bókaþjóðin íslenzka er þ\°^° örbirgust á þessu sviði. Því verðar ekki neitað. Hér er þjóðkirkjan hennar menn ótrúlega aðgerðala115 I samanburði við aðra söfnuði í laná" inu. Ég lœt hjá líða að leita upP' orsakir. En hér er veila, sem á ser langan aldur og hlýtur að drag° A

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.