Kirkjuritið - 01.10.1971, Blaðsíða 38
kostnctð, sem hvílir ó prestum vegna
embœttisstarfa. Þar með er fengin
grundvallandi viðurkenning á sann-
girnis- og réttlœtismáli, og er það vel.
Framlag til kirkjubyggingarsjóðs
fékkst hœkkað á siðustu stundu og
nam hœkkunin hlutfallslega miklu,
einni milljón eða þriðjungi á móti fyrri
veitingu. Er framlagið nú 3 milljónir.
Ber að þakka þessa hœkkun, en jafn-
framt skal lýst þeirri von, að hér
verði ekki staðar numið, heldur verði
áfram tekið tillit til knýjandi þarfar
fjárvana safnaða með sannsýnni
hliðsjón af hœkkun byggingarkost-
aðar.
Rafmagn til kirkna
Það er kunnugt og margrœtt, að
kostnaður kirkna vegna lýsingar og
hitunar með rafmagni hefur verið
þung byrði og óbœr fyrir hinar fá-
tcekari kirkjur. í framhaldi af við-
rœðum við iðnaðarmálaróðuneytið
um þetta vandamál, ritaði ég um það
bréf á dögunum og benti á fáein
dcemi um það, hve mjög þessi út-
gjöld fara fram úr því, sem fátcek-
um kirkjum er fœrt. í gœr fékk ég
bréf frá ráðuneytinu þar sem segir:
„Ráðuneytið hefur skrifað Rafmagns-
veitum ríkisins og falið þeim að verð-
leggja raforku til kirkna á veitusvœð-
um þeirra þannig, að það miðist við
um það bil hálft gjaldskrárverð raf-
orku í smásölu á hverjum tíma".
Þessi viðbrögð iðnaðarmálaráð-
herra, Jóhanns Hafsteins, munu víða
vekja gleði og heilshugar þakkir, og
í þakkar skyni er þessa getið hér.
36
Ýmislegt
Á annan í hvítasunnu, 31. maí, var
vígður hluti hinnar nýju kirkju 1
Hveragerði, þ. e. safnaðarsalurinn, og
verður hann notaður til guðsþjón-
ustuhalds fyrst um sinn, eða þar til
aðalkirkjan er fullbúin, en þess verð-
ur vonandi ekki langt að biða ór
þessu.
Aðrar kirkjuvígslur hafa ekki verið
að þessu sinni.
Laugardag fyrir hvítasunnu voru
vígðar klukkur þœr hinar miklu, sem
hér eru komnar í turn Hallgrímskirkju,
ásamt klukknaspili. Margir gefendot
hafa lagt saman til þess að kirkjan
mœtti eignast þessa dýrmœtu grip1'
en stóru samhringjurnar þrjár ero
gjöf frá Sambandi íslenskra Sarn-
vinnufélaga.
Ég vísiteraði Skaftafellsprófasts-
dœmi og hluta Kjalarnessprófasts-
dœmis, einnig tvœr kirkjur í Barða-
strandarprófastsdœmi. Prestum mín'
um og öðrum þakka 'ég ágœtusta
viðtökur og samveru.
Sr. Pétur vígslubiskup Sigurgeirsson
var fulltrúi vor á allsherjarþingi Lút-
herska Heimssambandsins í Evian 1
fyrra.
Sr. Ólafur Skúlason var áheyrnar-
fulltrúi á stjórnarnefndarfundi Heims'
sambandsins í Osló fyrr í þessurn
mánuði.
Þrír prestar héðan sóttu norrœnan
prestafund í Danmörku í september
sr. Grímur Grímsson, formaður Presta-
A